Síða 1 af 1

Ókláruð verkefni á ferð

Posted: 13.mar 2010, 10:00
frá ellisnorra
Toyota corolla 93 (toysaab) með 2.0 turbo úr saab (B202), átti að vera kvartmílugræja. Lengdur um 13cm og allt klárt nema púst. Svo gleymdi ég að læsa húddinu og það fauk upp á ferð, ég fór í fýlu og hef ekki keyrt hann síðan (3 ár síðan) Setti hann samt í gang fyrir nokkrum dögum síðan og hann var alveg tilbúinn að fara út að leika.
Fullt af myndum á http://elliofur.123.is/pictures/cat/9430/ , nokkur albúm af allri smíðinni
Saab 9000 getur fylgt með í varahluti, sama kram þar á ferð. Verð um eða undir 80 þús fyrir þá báða eða 55þús fyrir toysaab einan, gerið mér tilboð.
Image

Volvo 240, árgerð 90 minnir mig frekar en 89. Flottur bíll í góðu standi, reyndar með einu beygluðu vinstra frambretti en annars nokkuð heill og ryðlítill. Bein innspýting, B200E mótor og sjálfskiptur með overdrive. Þarf að kíkja á örfá atriði fyrir skoðun. Verð einhverstaðar í kringum 60 þúsund
Image

Pontiac Firebird 86, 305 T5 ólæstur. Mjög sprækur og skemmtilegur bíll í góðu standi, búið að skrúfa soldið í sundur þegar átti að fara að mála, þarf bara að klára að pússa hann niður, gefa yfir hann málningu og skrúfa saman aftur.
Sumir segja að ég vilji ekki selja hann, þannig að eiginlega er hann ekki til sölu nema ég fái í kringum 300 þús fyrir hann. Bíllinn er ekki fyrir mér og mér liggur ekki á að seljah ann, bara hef hann svona með ef einhver er til í að borga fyrir hann.
Image

Skoða skipti á 300+hp bensínmótor af chevrolet gerð sem hentar í jeppa eða góð dekk, 44" hið allra minnsta, fyrir 16.5" felgu
elliofur@vesturland.is

Re: Ókláruð verkefni á ferð

Posted: 15.mar 2010, 20:08
frá ellisnorra
Toysaab fékk að fara aðeins út að leika í dag, hann hefur ennþá upptakið sem mig minnti að hann hefði :)

Re: Ókláruð verkefni á ferð

Posted: 26.mar 2010, 07:46
frá ellisnorra
Volvoinn seldur, hinir ennþá til.

Re: Ókláruð verkefni á ferð

Posted: 30.aug 2010, 23:38
frá ellisnorra
Pontiacinn farinn fyrir sotlu síðan
Vill ekki einhver taka toysaab og smella honum í rallycross eða eitthvað? Fæst fyrir 40kall.

Re: Ókláruð verkefni á ferð

Posted: 14.jan 2011, 22:22
frá ellisnorra
Toysaab ennþá til og til sölu :)

Volvo 240 1990

Posted: 19.feb 2013, 15:01
frá Viditre
Goðan dag nú lágar mér að vita er þessi Volvo 240 1990 sem er verið að selja þarna er hann seldur þetta er hvítur bíl með beglu á vistra frambreti senda nér svar í laplander.russi@gmail.com

Re: Volvo 240 1990

Posted: 19.feb 2013, 16:16
frá ellisnorra
Viditre wrote:Goðan dag nú lágar mér að vita er þessi Volvo 240 1990 sem er verið að selja þarna er hann seldur þetta er hvítur bíl með beglu á vistra frambreti senda nér svar í laplander.russi@gmail.com



Ef þú lest allan þráðinn þá sérðu þetta innlegg frá 26. mars 2010
elliofur wrote:Volvoinn seldur, hinir ennþá til.



Ég veit ekkert hvað varð um hann.

Re: Ókláruð verkefni á ferð

Posted: 19.feb 2013, 16:20
frá villi58
Myndirnar eru óvirkar, breyttist allt í einu þegar ég var að skoða.

Re: Volvo 240 1990

Posted: 19.feb 2013, 21:46
frá Raggi B.
Ef þú lest allan þráðinn þá sérðu þetta innlegg frá 26. mars 2010
elliofur wrote:Volvoinn seldur, hinir ennþá til.



Ég veit ekkert hvað varð um hann.


Hann fór suður með sjó og var rifinn í spað, allavega á ég nokkra parta úr honum hjá mér ;)

Re: Ókláruð verkefni á ferð

Posted: 25.feb 2013, 10:36
frá gabrielkarason
er pontiacinn enþá til sölu?

Re: Ókláruð verkefni á ferð

Posted: 25.feb 2013, 14:18
frá ellisnorra
gabrielkarason wrote:er pontiacinn enþá til sölu?


Elsku vinur, lestu þráðinn. Hann seldur.
Allt selt í þessum þræði.

Re: Ókláruð verkefni á ferð

Posted: 25.feb 2013, 14:23
frá gabrielkarason
tók eftir því um leið og ég póstaði þessu