Síða 1 af 1

SELDUR TS: Skoda Octavia 1,8T 2003

Posted: 10.apr 2018, 22:15
frá Steinmar
Til sölu þessi líka sallfíni Skoda Octavia 1,8 Turbo Intercooler árg. 2003

Bíllinn er nýskoðaður í toppstandi; nýjar hjólalegur framan og aftan, nýjar spindilkúlur, nýuppteknar bremsudælur farman og aftan, nýjir diskar og klossar að aftan, nýlegt að framan. Skipt um tímareim og vatnsdælu í vetur, nýsmurður, skipt um allar síur.
Bíllinn er ekinn 193.000 km og hefur aðeins verið í eigu tveggja aðila frá upphafi. Smurbók og viðhaldssaga fylgir. Hann er á fínum sumardekkjum og það fylgja honum 4 nýleg negld Hankook iPike vetrardekk á felgum. Lakkið er upprunalegt og farið að sjá á því, nokkrar Hagkaups- og Bónusrispur fylgja. Að innan er bíllinn mjög fínn og sæti eru óskemmd og lítið slitin.
Nánari upplýsingar í síma 892-9865

Massagóður og þéttur bíll fyrir sanngjarnt gjald