Síða 1 af 1

Vantar einhverja vél

Posted: 14.des 2011, 18:18
frá Haffi
Sælir kæru samlandar

Mig vantar einhverja vél sem kemst í húddið á Suzuki Fox án þess að gera miklar breytingar á hásingu. Er með eina volvo b21 sem mér skilst að komist eiginlega ekki ofaní nema gera rótækar breytingar á fjöðrun að framan. Væri gaman að fá að vita ef einhverjir vita eitthvað um það. En annars var mér að detta í hug rocky dísel vél eða eitthvað. Bensín eða dísel, skiptir ekki máli, bara eitthvað sem kemst ofaní. Þarf að vera með kassa og má ekki kosta of mikið.

Skoða allt!

Re: Vantar einhverja vél

Posted: 14.des 2011, 18:30
frá Haffi
Já ég gleymdi einu, ég er lítið spenntur fyrir blöndungsmótorum.

Re: Vantar einhverja vél

Posted: 14.des 2011, 19:33
frá Svenni30
elliofur hérna á spjallinu er/var með rocky dísel vél. Getur prufað að tala við hann

Re: Vantar einhverja vél

Posted: 14.des 2011, 20:52
frá ellisnorra
Svenni30 wrote:elliofur hérna á spjallinu er/var með rocky dísel vél. Getur prufað að tala við hann


Hún er farin með bílnum utanum á nýtt heimili.

En ég á handa þér volvo turbo með öllu sem til þarf og fullt af auka dóti. Hafðu samband á elliofur@vesturland.is ef þú vilt fá myndir og nánari upplýsingar.