Fellihýsafjaðrir
Posted: 01.nóv 2011, 21:05
frá Oddur Jó
Vantar fjaðrir undir fellihýsi. Það er Steury árgerð 1972, undir því eru fjaðrirnar með 80 cm á milli augablaða og 45 mm breiðar. Veit einhver hvert er best að leita að slíkum fjöðrum nýjum eða notuðum?
Re: Fellihýsafjaðrir
Posted: 01.nóv 2011, 21:52
frá ellisnorra
Sæll.
Ég er í afskaplega svipuðum hugleiðingum, nema bara með bílakerru sem er með handónýtu flexitoradrasli. Ég hef hug á að kaupa fjaðrir að utan, sennilega frá truckspring.com.
http://www.truckspring.com/trailer-part ... rings.aspxÉg er svo að segja tilbúinn að panta þannig að mögulega getum við slegið saman í pakka til að spara flutning.
Gaman væri líka að heyra frá fleirum með skoðanir og tillögur!
Re: Fellihýsafjaðrir
Posted: 03.nóv 2011, 18:15
frá ellisnorra
Enginn með neitt til málanna að leggja?