Síða 1 af 1

ÓE Gírkassa i Ford Ranger 2.5 12v TDI ár 00'

Posted: 02.okt 2011, 20:37
frá Hrannifox
Einsog segir í fyrirsögnini þá vantar mér gírkassa i Ford Ranger 2.5 TDI

held að þetta sé sami kassi og er i bronco 2 og kannski í fleiri Fordum

kassinn eftir því sem ég kemst næst heitir M50D-R1.

veit voðalega litið meira um þetta mál enda er frekar erfitt að finna varahluti i þennan bil yfir höfuð.

einnig ef þið búið yfir vitneskju um þessa bila meigiði endilega deila henni hérna.

best er að senda pm eða hringja i mig 773-7832 Hrannar.

Re: ÓE Gírkassa i Ford Ranger 2.5 12v TDI ár 00'

Posted: 02.okt 2011, 22:18
frá Stebbi
Ef að þú finnur ekkert þá gæti verið þess virði að kanna hvort að það passi ekki örugglega kassi úr Pajero/Galloper/Mazda B2500 í hann. Ford Ranger kom fyrst með dísel vélum frá Mitsubishi og Mözdurnar líka.

Re: ÓE Gírkassa i Ford Ranger 2.5 12v TDI ár 00'

Posted: 03.okt 2011, 09:59
frá atlifr
Sæll

Ertu viss um að þetta sé kassinn aftan á dísel vélinni. Ég þekki að vísu díselvélarnar lítið en þessi kassi er aftan á flestum bensín mótorum í ranger og explorer.

Ef þetta er réttur kassi ætti að vera möguleiki að fá hann úr beinskiptum ranger 4,0 L og jafnvel úr þeim gamla sem er 2,9.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef eru mismunandi hlutföll í þeim en ekki svo mismunandi að það ætti að skipta máli.

Það er sami kassi fyrir aftan 3,0 vélina en hann passar ekki á 4,0 vélina þannig að þú þarft helst að vita hvorum mótorinn þinn líkist.

Þetta eru Mazda gírkassar þannig að þú ættir jafnvel að geta fundið þá í Mazda pallbílum og jafnvel skoða hvort það séu svipaðir kassar í öðrum asíu bílum eins og Stebbi segir

Re: ÓE Gírkassa i Ford Ranger 2.5 12v TDI ár 00'

Posted: 22.nóv 2011, 00:47
frá Hrannifox
þakka svörin :) þarf að skoða þetta betur setti samt inn óvart vitlaust númer á kassanum það er víst M5oD-R1. Ekkert núll í þessu.

Veit að þessi kassi kom i bronco 2, explorer og örugglega fleiri bílum.


líka spurning hvort það svari kosnaði að láta smíða öxla og fleira, miðað við að skifti kassi kostar $$ 1 miljón takk fyrir pent.

ætla að athuga með Pajero/Galloperinn

enn og aftur þakka ég svörin :)