Síða 1 af 1

Vantar efni í drullusokka

Posted: 24.júl 2020, 11:44
frá jongud
Mig vantar efni í drullusokka
(ekki samt frambjóðendur í pólitík)
Ég er búinn að þræða bæinn ansi vel og kíkt hjá þessum;
Bílasmiðurinn
Stál og stansar (bara plastdrasl)
ET verslun
Gúmmísteypan
Byko
Múrbúðin
Húsamiðjan
ArcticTruck$$$

Veit einhver um færibandagúmmi sem er falt?

Mér dettur ekki hug að BORGA fyrir að auglýsa arctictrucks aftan á rassinum á bílnum mínum.

Re: Vantar efni í drullusokka

Posted: 24.júl 2020, 13:36
frá helgiarna
Prófaðu að tala við Poulsen eða Fálkann og jafnvel Fossberg

Re: Vantar efni í drullusokka

Posted: 24.júl 2020, 22:30
frá Skafti93
Rs partar eiga til

Re: Vantar efni í drullusokka

Posted: 25.júl 2020, 09:36
frá jongud
Skafti93 wrote:Rs partar eiga til

Vörubíladrullusokkar?
Jafn þungir og þykkir og hlöðuhurð!

Re: Vantar efni í drullusokka

Posted: 25.júl 2020, 17:11
frá hobo
Arctic Trucks áttu til á sínum tíma tvær stærðir og annað hvort merkt fyrirtækinu og svo 4X4.
Ég keypti að sjálfsögðu 4X4 sokkana.
Þegar ég var í þessu brasi endaði ég á að borga aðeins meira og kaupa af AT.
Gott ef mig sveið ekki ansi mikið í afturendann.

Re: Vantar efni í drullusokka

Posted: 26.júl 2020, 12:19
frá villi58
Var ti í Straumrás Akureyri og kanski þá í Landvélum ??

Re: Vantar efni í drullusokka

Posted: 27.júl 2020, 14:04
frá jongud
Fossberg!
Þeir áttu til efni í bæði 3 og 5mm þykkt.