Síða 1 af 1

ÓE Dodge/jeep 5.9 magnum mótor -KOMIÐ

Posted: 11.nóv 2018, 12:44
frá petrolhead
Góðan og blessðan.

Ég mundi gjarnan vilja eignast eitt stk. svona 5.9 magnum mótor og ekki verra ef honum fylgdi flexplata fyrir 46RE skiptingu.
Skoða allt hvort sem er í topp lagi eða þarfnast upptektar og allt þar á milli, svo ef einvher á svona gæða grip og gæti hugsað sér að sjá af honum þá mætti viðkomandi hafa samband við mig á netfangið <gardartr@gmail.com> eða í skilaboðum.

MBK
Gæi

Re: ÓE Dodge/jeep 5.9 magnum mótor

Posted: 18.nóv 2019, 01:31
frá petrolhead
Tilraun 2

Re: ÓE Dodge/jeep 5.9 magnum mótor

Posted: 21.nóv 2019, 22:20
frá petrolhead
Ég veit svo sem að þetta eru eins góðir mótorar og þeir gerst, en kommon það hlýtur nú einhver að eiga svona og tíma að láta frá sér :-/

Re: ÓE Dodge/jeep 5.9 magnum mótor

Posted: 22.nóv 2019, 09:21
frá thorir
Er ekki bara að kaup bíl með mótor?

https://bland.is/til-solu/farartaeki/bi ... l/4100958/

Re: ÓE Dodge/jeep 5.9 magnum mótor

Posted: 22.nóv 2019, 19:23
frá petrolhead
Það er reyndar alveg hugmynd :-D Ef maður finndi bíl sem væri orðinn "hræ" væri það fínn kostur en þessi Cherokee sem linkurinn er á virðist fljótt á litið vera fínasti bíll svo það væri nú synd að fara að slátra honum til þess eins að ná sér í mótor, enda kostnaðarlega gæti ég þá allt eins keypt long block að utan sem kostar ~$2000

Re: ÓE Dodge/jeep 5.9 magnum mótor

Posted: 23.nóv 2019, 00:49
frá íbbi
vippar gamla 318 yfir í indjánann og selur hann aftur ;)

Re: ÓE Dodge/jeep 5.9 magnum mótor

Posted: 23.nóv 2019, 02:09
frá petrolhead
Já Íbbi ég er búinn að huxxxa þetta !!
Væri mikið auðveldara ef þessi Cherokee væri ryðhaugur eða vel tjónaður þá mundi maður ekki hika við að slátra honum, ég vil bara helst ekki slátra bílum sem eru þokkalegir.
Að swappa vélum væri sniðug en ég var..og er... að vonast til að finna mótor sem ég get dundað mér við að gera upp og peppa aðeins án þess að vera með Raminn stopp á meðan en ef það tekst ekki á næstu vikum þá fer maður að skoða svona pakka....maður gefur þessu smá tíma í viðbót alla vega :-P

Re: ÓE Dodge/jeep 5.9 magnum mótor

Posted: 24.nóv 2019, 01:12
frá íbbi
ég trúi ekki öðru en að það finnist svona mótor hérna, römunum sem komu með þeim hefur a.m.k snarfækkað.

Re: ÓE Dodge/jeep 5.9 magnum mótor

Posted: 26.nóv 2019, 19:39
frá petrolhead
Já já, þetta dúkkar upp fyrir rest svo maður bíðar bara rólegur.
Næsta mál verður að tjasla aðeins í 5.2 vélina svo hún dugi þangað til maður er búinn að finna stóru systir.