Síða 1 af 1

Hjálp SOS

Posted: 10.maí 2017, 21:00
frá polaris
Sælir félagar ég er í tómum vandræðum ;=(
Þannig er mál með vexti að mig vantar olíu verk við toyotu colster 3,4 cc. Annað nafn á henni er 3B en mín vél er á bilinu 80 til 83 módel.
Þannig að ef einhver veit um eða þekkir einhvern sem gæti hjálpað mér að finna svona verk þá væri það vel þegið og allar uppl óskast í
Síma 8474055
Eða hérna inn
Með fyrirfram þökk og kær kveðja

Re: Hjálp SOS

Posted: 10.maí 2017, 21:49
frá ellisnorra
Þú gætir leitað lengi af þessu, þetta er fágæti. Athugaðu möguleikann á að nota olíuverk af öðrum vélum, menn eru allt of hræddir við (eða átta sig ekki á möguleikanum) að setja eitthvað allt annað olíuverk við. Það þarf ekkert endilega að horfa í sömu tegund því margir framleiðendur olíuverka framleiða fyrir marga bílaframleiðendur, td Bosch og Zexel.
Finndu þér mótor sem er svipaður í rúmtaki og athugaðu hvort möguleiki sé að færa verkin á milli. Oft er þetta svipað, 2 eða 3 festiboltar framaná olíuverkinu og öxullinn mjög oft eins.

Re: Hjálp SOS

Posted: 11.maí 2017, 03:41
frá grimur

Re: Hjálp SOS

Posted: 12.maí 2017, 19:56
frá Startarinn
Menn hafa líka fært stimpla á milli verka, t.d. ætlaði kunningi minn að taka stimpla úr verki af Izuzu 3,9 og setja í verk af 3ja lítra Cruiser mótor. Hann endaði á að fara aðra leið.

Re: Hjálp SOS

Posted: 16.maí 2017, 20:41
frá BTF
Ég á svona, er þetta málið?
Veit ekkert um ástand.
Kv. Birgir
S. 8247440
20170516_203239.jpg
20170516_203239.jpg (1.23 MiB) Viewed 2254 times