Síða 1 af 1
ÓE - nemi fyrir gamlan afgashitamæli
Posted: 05.apr 2017, 22:23
frá aae
Smá bjartsýniskast hjá mér, en gæti verið að einhver eigi nema af svona afgashitamæli.
Þetta var flutt inn af Benna Kaupfélagsstjóra á Akureyri í einhverju magni fyrir 5-6 árum.

- afgashitam.JPG (38.18 KiB) Viewed 3204 times
Er kannski hægt að tengja prope með k-type thermocopule við mælinn og reikna með að hann mæli rétt? Eða mun hann bara sýna eitthvað út í loftið?
Vil helst losna við að rífa mælinn úr mælaborðinu..
Re: ÓE - nemi fyrir gamlan afgashitamæli
Posted: 05.apr 2017, 22:32
frá svarti sambo
Re: ÓE - nemi fyrir gamlan afgashitamæli
Posted: 06.apr 2017, 00:37
frá kaos
aae wrote:Er kannski hægt að tengja prope með k-type thermocopule við mælinn og reikna með að hann mæli rétt? Eða mun hann bara sýna eitthvað út í loftið?
Vil helst losna við að rífa mælinn úr mælaborðinu..
Ég hefði haldið það, miðað við að það er talað um "K type sender" í auglýsingunni. Snögg Ebay leit skilaði t.d. þessu:
http://www.ebay.com/itm/2M-EGT-K-Type-Thermocouple-Exhaust-Probe-High-Temperature-Sensors-Threads-New-/152355511547?hash=item2379189cfb:g:QZoAAOSw-0xYUPnr (Ath. að þetta er bara fyrsta líklega niðurstaðan sem ég fann)
--
Kveðja, Kári.
Re: ÓE - nemi fyrir gamlan afgashitamæli
Posted: 06.apr 2017, 09:48
frá svarti sambo
Þar sem að ég tók eftir því að ebay leitin kemur frá kína, þá er hann aðeins ódýrari bara beint þaðan.
https://www.aliexpress.com/item/K-Type- ... 77a51b423eGetur svo kannski sannreynt hann, með laser hitabyssu.
Miðað við verð, þá er alveg þess virði að láta vaða.
Re: ÓE - nemi fyrir gamlan afgashitamæli
Posted: 08.apr 2017, 01:21
frá aae
Takk fyrir þetta, er búinn að panta frá kínamanninum :-)
Re: ÓE - nemi fyrir gamlan afgashitamæli
Posted: 08.apr 2017, 23:40
frá ellisnorra
Þessi sem Elías benti á er einmitt rétti sensorinn. Það skiptir töluverðu máli að hafa próbuna þokkalega efnismikla, ég þekki dæmis þess að mjó próba hafi brotnað og farið í túrbínuna. Túrbínan var ekki glöð með það. Maður veit svosem ekkert með efnið í þessu, en að sjá er þetta betra. Ég hef ekki lent í að brjóta próbu ennþá enda hef ég alltaf valið sverari gerðina.
Type K sender í auglýsingunni gefur bara eitt til kynna, þetta er rétt próba.
Re: ÓE - nemi fyrir gamlan afgashitamæli
Posted: 09.apr 2017, 13:27
frá aae
Þessi sem Elías benti á er einmitt rétti sensorinn. Það skiptir töluverðu máli að hafa próbuna þokkalega efnismikla, ég þekki dæmis þess að mjó próba hafi brotnað og farið í túrbínuna. Túrbínan var ekki glöð með það. Maður veit svosem ekkert með efnið í þessu, en að sjá er þetta betra. Ég hef ekki lent í að brjóta próbu ennþá enda hef ég alltaf valið sverari gerðina.
Type K sender í auglýsingunni gefur bara eitt til kynna, þetta er rétt próba.
Ég tók að vísu nema sem er styttri en samt svona boginn. Ég fór þá leið á sínum tíma að koma nemanum fyrir í 10 eða 12 mm ryðfríum bolta einmitt af því að mér fannst próban svo efnislítil, var ekki nema 3 mm í þvermál. Þessi nýja verður 5 mm svo nú þarf ég að bora aðeins stærra gat í boltann þegar þetta fer í. Boltinn skrúfast svo í blindflans (flatjárnsbútur) sem lokar gati á pústgreininni þar sem EGR draslið var. Þannig losnaði ég við að bora og snitta í pústgreinina og hugsanlega missa svarf inn í túrbínuna.