Síða 1 af 1

Upph. klossar í Terrano ll óskast.

Posted: 24.nóv 2014, 21:14
frá ihþ
Er einhver sem liggur með 2" upphækkunarklossa í Terrano ll 1999 módel.
Er það annars ekki málið fyrir 33" breytingu ?

Re: Upph. klossar í Terrano ll óskast.

Posted: 01.des 2014, 22:45
frá ingvi.s
Það þarf ekki endilega að gera þetta með klossum, minn var á 33 tommum, var sennilega breytt af fjallasport og var þannig gert að það var klippt smávegis í hvalbak og örlítið að framanverðu úr afturbrettum, 10 mm flatjárn á samsláttarpúðana að framan, u-skúffa ca. 40mm breidd x 20mm há undir samsláttarpúðana að aftan, 2 tommu hækkunarklossar ofaná gorma að aftan, sáralítið/helst ekkert skrúfað upp að framan. Þannig sýndist mér þetta allavega hafa verið gert þegar ég breytti mínum af 33 upp í 38tommur.