Síða 1 af 1
Pajero 88 Stuttur
Posted: 12.des 2010, 14:27
frá Ingójp
Sælir er búinn að ákveða að spaða pajero auðvitað hellingur til þannig séð bíllinn er rúllaður með svörtu skipalakki.
Bíllinn er ekinn 311.xxx km
Mótor 60.000 km Kjallarinn nýr úr Heklu Hedd frá vélalandi og smurkerfi í N1
Gírkassinn 100.000 km man ekkert hvaðan hann kom
Húdd með scoopi en það voru pinnar í gegnum það
Nýr Vatnskassi frá gretti aldrei verið settur í
Startari
Svo er það auðvitað fullt af smádóti getið sent mér skilaboð og ég get athugað hvort það sé ekki til
Stýrismaskínan er seld í slátur á þó aðra til
Re: Pajero 88 Stuttur
Posted: 14.des 2010, 15:39
frá Ingójp
Engum sem vantar neitt áður en ég hendi flakinu?
Re: Pajero 88 Stuttur
Posted: 14.des 2010, 16:28
frá Jens Líndal
Hendir flakinu?
Hvað ertu búinn að rífa úr bílnum og hvað er eða var að honum?
Re: Pajero 88 Stuttur
Posted: 16.des 2010, 13:51
frá Rognvaldur
Sæll Ingólfur Ég gæti líklega notað vatnskassann. Er með 6 cyl. 3 lítra 1991 bensín Pajeró. Heldurðu að kassinn passi í hann? Ætlaði að hringja í þig en fann ekki símanúmer. Netfangið mitt er
rol@hi.is
Re: Pajero 88 Stuttur
Posted: 16.des 2010, 21:18
frá Kiddi
Gefðu mér verð í bílinn, vélarlausan!
Re: Pajero 88 Stuttur
Posted: 16.des 2010, 22:43
frá arnijr
Ertu að hugsa um að setja í hann 350 Kiddi?
Re: Pajero 88 Stuttur
Posted: 20.des 2010, 19:20
frá Ingójp
Afsakið biðina strákar er búinn að vera tölvulaus
Búinn að senda þér póst varðandi vatnskassann
Það sem er að bílnum er nú ekki mikið hef bara engan tíma né húsnæði til að vinna í honum
Það þarf að skipta um stýrismaskínu eða skipta um pakkningar í henni endurnýja púst frá miðju meira er það ekki ef minnið er ekki að plata mig
Myndi helst vilja losna við hann eins og hann er þar sem ég hef engan stað eða búnað til að rífa vélina úr
annars er síminn hjá mér 8210033
Re: Pajero 88 Stuttur
Posted: 20.des 2010, 22:27
frá arnijr
Hvernig er grindin í honum, sérstaklega fyrir ofan hásingu? Þeir fara yfirleitt þar. Er bíllinn eitthvað breyttur, kantar á honum og slíkt? Áttu kannski myndir?
Re: Pajero 88 Stuttur
Posted: 21.des 2010, 10:09
frá Ingójp
Bíllinn er með breytingaskoðun fyrir 35" samkvæmt þeim sem ég kaupi bílinn af. Hann er á 31" núna voðalega made in sveitin kanntar á honum á enga mynd af honum eins og er. Ætti að geta hennt mér út á efir þegar birtan er komin og tekið eina eða tvær myndir fyrir þig. Varðandi grindina þá var einhver sem kom og skoðaði hann hjá mér um daginn og sagði hana í fínu standi ég hef bara svo lítið vit á þessu til að dæma það