Síða 1 af 1

TS: Afgasmælar. Seldur!!!!

Posted: 10.okt 2014, 15:17
frá villi58
Afgasmælir digital..jpg
Afgasmælir með föler
Afgasmælir digital..jpg (32.47 KiB) Viewed 11041 time
Með afgasmæli sem ég vil selja, sýnir volt á 10 mín fresti. Verð: 14 þús. föler fylgir. Úthringurinn er með ljósum svona kubbum sem kemur ljós á þegar afgas hitnar, byrjar á grænum ljósum síðan tekur við gul ljós og svo koma rauð ljós. Hitastig er svo í miðjum mæli, digital tölur.
Fölerinn er ryðfrír og eins festiróin sem fölerinn fer í, skerming á kapli er ryðfrí.
Ef borað er og snittað er í grein þá er hann tilbúinn en ef hann er settur á púströr þá þarf að sjóða 1/8 ryðfríja rör-múffu og fölerinn skrúfast þá í hana. Á baki mælis er svona U- festing, þessi hefbundna sem hefur verið á mælum í tugi ára, hentar þá fyrir 52 mm gat eða í plastmælahús sem margir nota.

S: 868-9356
villi58@talnet.is

Re: TS: Afgasmælir

Posted: 10.okt 2014, 21:22
frá villi58
Trúlega seldir, læt vita ef eitthvað breytist.

Re: TS: Afgasmælar.

Posted: 06.nóv 2014, 14:29
frá villi58
Kominn með nokkra afgasmæla.

Re: TS: Afgasmælar.

Posted: 09.nóv 2014, 14:00
frá villi58
Fjórir eftir.

Re: TS: Afgasmælar.

Posted: 09.nóv 2014, 17:31
frá Eiður
Hvaða týpa eru þessir mælar?

Re: TS: Afgasmælar.

Posted: 26.nóv 2014, 19:20
frá villi58
Eiður wrote:Hvaða týpa eru þessir mælar?

Þeir heita Dragon, búinn að kaupa þessa mæla síðan 2007. og ekki einn kvartað, virkilega skemmtilegir mælar, ljósareitir í útjaðrinum byrja á grænum lit síðan gulur og svo tekur rauður litur við.
Þessi hreyfing á ljósum ásamt digital tölum verða til þess að maður fylgist mikklu betur með hita heldur en á vísismælum (analog mælum). Auk þess þá sína þessir mælar volt á rafgeymum eða lúmminu eftir hvernig þeir eru tengdir.
Analog mælar frá sama framleiðanda hafa ekki reynst vel, það er baklýsing í mælinum og eins er ljós í vísi sem byrjar fljótlega að blikka og síðan hverfur, baklýsingin hefur líka gefið sig en hefur enst betur en í vísi. Þrátt fyrir að analog mælarnir séu ódýrari þá er þessi galli við þá, hef ekki fengið kvörtun vegna Digital mæla sem eru mun dýrari.

Re: TS: Afgasmælar.

Posted: 15.des 2014, 16:36
frá kuturinn
attu enn mæla ?

Re: TS: Afgasmælar.

Posted: 01.jan 2015, 14:15
frá villi58
Ný sending af afgasmælum. Mælaskrattarnir seldir!!!!!

Re: TS: Afgasmælar. Seldir! Með í pöntun

Posted: 01.feb 2015, 14:32
frá villi58
Á von á afgasmælum og Boost-mælum í lok febrúar, einnig mælahúsum fyrir 3 mæla og fl.

Re: TS: Afgasmælar. Seldir! Með í pöntun

Posted: 01.feb 2015, 15:54
frá jeepson
Fott. Ætla að fá einn afgas mælir hjá þér. Gleymdi altaf að hafa samband við þig síðast.

Re: TS: Afgasmælar. Seldir! Með í pöntun

Posted: 01.feb 2015, 17:49
frá villi58
jeepson wrote:Fott. Ætla að fá einn afgas mælir hjá þér. Gleymdi altaf að hafa samband við þig síðast.

Set þig á listann.
Kveðja! VR

Re: TS: Afgasmælar. Seldir! Með í pöntun

Posted: 01.feb 2015, 17:54
frá bjsam
Getur þú reddað mælir til að sjá hvað túrbínan er að blása mikið?.Kv.Bjarni

Re: TS: Afgasmælar. Seldir! Með í pöntun

Posted: 02.feb 2015, 11:07
frá villi58
bjsam wrote:Getur þú reddað mælir til að sjá hvað túrbínan er að blása mikið?.Kv.Bjarni

Á engann eins og er, með í pöntun. Ég er líka með Boost digital mæla í pöntun, eins mælahús fyrir 2 og 3 mæla.

Re: TS: Afgasmælar. Komnir aftur

Posted: 14.feb 2015, 14:46
frá villi58
Afgasmælarnir komnir.

Re: TS: Afgasmælar. Komnir aftur

Posted: 14.feb 2015, 15:23
frá bjsam
Sæll, fékkstu nokkuð mælir fyrir túrboið ?.Kv

Re: TS: Afgasmælar. Komnir aftur

Posted: 14.feb 2015, 15:25
frá villi58
bjsam wrote:Sæll, fékkstu nokkuð mælir fyrir túrboið ?.Kv

Ég fékk bara afgasmæla núna en Boost er á leiðinni, veit ekki alveg með komutíma, trúlega um mánaðarmót kanski fyrr.

Re: TS: Afgasmælar. Komnir aftur

Posted: 14.feb 2015, 16:18
frá bjsam
Ok. fæ að fylgjast með. Kv.

Re: TS: Afgasmælar. Komnir aftur

Posted: 22.feb 2015, 12:54
frá villi58
bjsam wrote:Ok. fæ að fylgjast með. Kv.

Ég set hér inn um leið og ég fæ meira af dóti.

Re: TS: Afgasmælar. Komnir aftur

Posted: 24.feb 2015, 14:28
frá villi58
Kominn með afgasmæla.

Re: TS: Afgasmælar. Komnir aftur

Posted: 24.feb 2015, 14:36
frá karig
Eru gengjurnar 1/8 sem þar að snitta fyrir fölerinn? kv, kári.

Re: TS: Afgasmælar. Komnir aftur

Posted: 24.feb 2015, 15:35
frá villi58
karig wrote:Eru gengjurnar 1/8 sem þar að snitta fyrir fölerinn? kv, kári.

Já 1/8 röragengjur.

Re: TS: Afgasmælar. Komnir aftur

Posted: 24.feb 2015, 15:43
frá Árni Braga
hvað er verðið á þessu hjá þér. aha búin að sjá það sorry

Re: TS: Afgasmælar. Komnir aftur

Posted: 24.feb 2015, 15:57
frá villi58
Árni Braga wrote:hvað er verðið á þessu hjá þér. aha búin að sjá það sorry

Ég held að þetta gerist ekki ódýrara enda verð ég seint ríkur ef ég held þessu verði áfram.
Ég keypti eins mæli 2006 eða 2007 og þá þurfti ég að borga 11.600.- þess má geta að hann er enn í lagi sem ég bjóst ekki við. Þess vegna hef ég keypt þessa mæla en ekki aðra á svipuðu verði, búinn að kaupa flesta Kína mælana til prufu og geri það ekki aftur.

Re: TS: Afgasmælar. Komnir aftur

Posted: 20.mar 2015, 12:02
frá eiriksra@gmail.com
Sælir.

Getur þú látið mig vita þegar þú ert kominn með afgas og boost mæla ásamt húsinu? Hef einnig verið að láta mig dreyma um hitamæli á sjálfskiptinguna - er það eitthvað sem þú getur haft milligöngu um (liggur ekki lífið á)?

Kv. Ragnar
eiriksra@gmail.com

Re: TS: Afgasmælar. Komnir aftur

Posted: 29.mar 2015, 11:40
frá villi58
Á til nokkra afgasmæla, mælahús, 1 stk. boostmæli.

Re: TS: Afgasmælar. Fer að hætta þessu brasi.

Posted: 30.mar 2015, 12:57
frá hjalti18
sæll ég væri til í boostmæli og afgasmæli hja þér og hvaða verð er á þeim saman

kv hjalti

Re: TS: Afgasmælar. Fer að hætta þessu brasi.

Posted: 07.apr 2015, 10:32
frá villi58
Ný sending af afgasmælum og mælahúsum fyrir 3 mæla.

Re: TS: Afgasmælar.

Posted: 12.apr 2015, 11:34
frá villi58
Mælar og mælahús sem eru frátekin fyrir nokkra aðila, þá bið ég að hafa samband og segja mér hvort þeir ætli að taka það sem þeir eru búnir að panta.
Mér líkar illa að liggja með hluti sem eru búnir að vera fráteknir og neitað oft öðrum um að kaupa af mér, lámarks kurteysi að bjalla í mig.
S: 868-9356
villi58@talnet.is

Re: TS: Afgasmælar.

Posted: 14.apr 2015, 12:18
frá villi58
Á til nokkra mæla.

Re: TS: Afgasmælar.

Posted: 16.apr 2015, 12:15
frá villi58
Þessir mælar hafa reynst mér vel og er ég með mæli í mínum Hilux sem er búinn að duga síðan 2006 eða 2007, man ekki alveg en skiptir ekki mikklu.
Mælarnir eru mjög skemmtilegir í notkun og fölerarnir eru sérstaklega vandaðir, ekki hægt að segja það um allar sortir sem ég hef keypt, búinn að prufa margar týpur á þeim árum sem ég hef verið að kaupa og prufa.
Reyndar orðið mér fjandi dýrt að kaupa og prufa til að finna mæla sem ég er sáttur við.
Nú er tækifæri að kaupa mæla sem eru örugglega þeir ódýrustu sem eru seldir hér á landi.
Þess má geta að vegna breyttra aðstæðna þá fer ég að hætta þessum innkaupum og snúa mér að öðru.
Á til nokkra afgasmæla, Boostmæla og mælahús fyrir 2 og 3 mæla.

Re: TS: Afgasmælar.

Posted: 30.apr 2015, 17:15
frá villi58
Nú er lagerinn að verða lítill þannig að það stittist óðum að ég fari að hætta þessu, fáið varla ódýrari mæla hér á landi.
SELDIR.

Re: TS: Afgasmælar. 1 eftir!!!!!!!

Posted: 14.jún 2015, 18:29
frá villi58
Einn mælir til.

Re: TS: Afgasmælar. 1 eftir!!!!!!!

Posted: 30.jún 2015, 15:33
frá villi58
Einn mælir til. ...SELDUR....