Síða 1 af 1
MMC Pajero 1998, 2,8 TDI í varahluti - myndir
Posted: 11.mar 2014, 23:05
frá halldorm
Gullmolinn minn var að gefa upp öndina. Heddið fór og ég er búinn að gefast upp.
https://www.facebook.com/photo.php?fbid" onclick="window.open(this.href);return false; ... =3&theater
Það er margt heillegt, nýlegt og nýtilegt úr greyinu:
Hér að neðan er uppfærður listi yfir hvað er til.
kk
Halldór
Uppfært 28.7.2015. Þarf að losna við þetta dót úr skúrnum. Verið óhræddir við að bjóða. Væri til í að losna við allt saman á mjög lítið... hendið á mig tölu og við skulum spjalla saman.. :-)
Re: MMC Pajero 1998, 2,8 TDI í varahluti
Posted: 12.mar 2014, 16:13
frá halldorm
Það er líka til eitthvað vélaslátur:
- Svinghjól með startkransi
- Smurolíudæla
- Vatndæla
- Olíupanna
- Mótorpúðar
- Stimplar (orginal stærð)
ofl.
Re: MMC Pajero 1998, 2,8 TDI í varahluti
Posted: 27.mar 2014, 11:26
frá halldorm
útsala á vélinni fram að helgi (23.3.2014) Ný upptekinn neðrihluti, nýrenndur sveifarás og nýjar legur, ný tímakeðja, sleðar og strekkjari, nýjir stimpilhringir, blokkin og stimplarnir heflaðir. Beinn kostnaður við vinnu og varahluti var um 120 þús. Útsala krónur 60.000 íslenskar haftakrónur. Heddið er sprungið, en annað hedd getur fylgt með, þarf bara að færa knastásinn og ventlana á milli. Nýjir Heklu heddboltar eru í heddinu, einu sinni hertir, aldri verið keyrðir.
Glitrandi og falleg framljós, 5.000 kall stykkið
Rúður og boddy fara í pressuna núna á miðvikudaginn, nema einhvern bráðvanti.. :-)
kk
Halldór
Re: MMC Pajero 1998, 2,8 TDI í varahluti
Posted: 02.maí 2014, 21:14
frá halldorm
Boddýið farið í tætarann hjá Furu, dekkin seld en sitt hvað eftir til sölu
https://www.facebook.com/photo.php?fbid ... =3&theater" onclick="window.open(this.href);return false;
Smurolíudæla og jafnvægisstangir - Kr. 0
Olíukælir - Kr. 0
Smurolíuhæðarmælar 2 stk - Kr. 0 pr stk
Vatnskassi - Kr. 0
Loftsíuhús - Kr. 0
Sett af orginal stærð stimplar (2 sett) - Kr. 0 pr. sett
Svinghjól með startkransi - Kr. 0
Vatnsdælur 2 stk - Kr. 0 pr. stk
Olíupanna + hlífðarpanna - Kr. 0
Mótorpúðar (2 sett) - Kr. 0 pr. sett
Hægra Framljós - kr. 0
Afturljos - kr. 0 pr. stk
Diesel fæðing og return rör í Olíutankinn með síu - Kr. 0 (keypt nýtt í Heklu fyrir 12 mánuðum)
Grill - Kr. 0
Intercooler - Kr. 0
Hægri Bremsudæla aftan - Kr. 0
Re: MMC Pajero 1998, 2,8 TDI í varahluti - myndir
Posted: 09.júl 2014, 10:42
frá Hakon I
Áttu vélina ennþá til?
Re: MMC Pajero 1998, 2,8 TDI í varahluti - myndir
Posted: 09.júl 2014, 10:47
frá halldorm
vélin er enn til.. :-)
Re: MMC Pajero 1998, 2,8 TDI í varahluti - myndir
Posted: 09.júl 2014, 13:25
frá joisnaer
hvernig læsing er í þessu framdrifi?
Re: MMC Pajero 1998, 2,8 TDI í varahluti - myndir
Posted: 09.júl 2014, 13:51
frá halldorm
Sæll
Veit það ekki nákvæmlega. þetta er orginal drif með vacum þrýstijafnara.
Re: MMC Pajero 1998, 2,8 TDI í varahluti - myndir
Posted: 23.apr 2015, 00:01
frá Stebbi
Þá er ekki læsing í drifinu.
Re: MMC Pajero 1998, 2,8 TDI í varahluti - myndir
Posted: 04.júl 2016, 14:01
frá halldorm
Síðasta útkall. þetta vélarslátur ásamt tveimur stráheilum afturljósum fer á sorpu í vikunni. Ef einhver vill hirða þetta og gera eitthvað úr þessu, þá er síminn hja mér 858 9910.
Góðar stundir
Halldór