Síða 1 af 1

[ÓE] Miðstöðvarmótstöðu í Cherokee XJ

Posted: 08.mar 2014, 11:34
frá AgnarBen
Góðan dag

Vantar sem fyrst miðstöðvarmótstöðuna sem er undir mælaborðinu farþegamegin !!!

Á þetta einhver til eða lumar einhver á flaki sem ég má rífa þetta úr ?

Megið hafa samband í einkaskilaboðum / agnarben@gmail.com / 893 0557

motstada.JPG
motstada.JPG (10.82 KiB) Viewed 2488 times

Re: [ÓE] Miðstöðvarmótstöðu í Cherokee XJ - mér er orðið kalt !!

Posted: 08.mar 2014, 23:52
frá AgnarBen
Ekkert flak sem liggur einhvers staðar !

Re: [ÓE] Miðstöðvarmótstöðu í Cherokee XJ - mér er orðið kalt !!

Posted: 09.mar 2014, 10:13
frá haffiamp
jú reyndar.... í hafnarfirði í hrauninu er partasala sem heitir jeppahlutir, á móti henni er fura, á milli þeirra er stórt malarplan þar sem geymdir eru vagnar og flr... ég keyri þarna reglulega og það liggur þarna xj á hvolfi og hefur gert í allavega 7-8 mánuði...

Re: [ÓE] Miðstöðvarmótstöðu í Cherokee XJ - mér er orðið kalt !!

Posted: 09.mar 2014, 22:13
frá AgnarBen
Það eru eintómir snillingar á þessu spjalli, þetta er komið - fékk heimsendingu í kvöld alla leið úr Öræfum með mótstöðu :)

Nú er reyndar komið annað vandamál, þegar miðstöðin hrökk í gang þá eru legurnar skyndilega farnar að væla :-( Þannig að kannski maður kíki á þetta flak bara í Hfj og ath hver á þetta !

takk allir !

Re: [ÓE] Miðstöðvarmótstöðu í Cherokee XJ - mér er orðið kalt !!

Posted: 10.mar 2014, 17:20
frá Siggi
ég á mótor líka, veit reyndar ekkert með ástandið á honum

Re: [ÓE] Miðstöðvarmótstöðu í Cherokee XJ - mér er orðið kalt !!

Posted: 11.mar 2014, 00:13
frá AgnarBen
Takk fyrir það Siggi. Ég tók eftir því að þegar gamli mótorinn er í gangi að þá dregur all verulega niður í voltamælinum hjá mér. Ég kannaði þetta því aðeins betur og fann út að þegar þessir skrattar fara að eldast að þá fara þeir að draga allt of mikinn straum og geta valdið alls konar pillerí bilunum í rafkerfinu eins og að eyðileggja mótstöður og rofa þannig að ég ákvað að splæsa bara í nýjan mótor :) En mótstaðan virkaði vel, takk fyrir hana.

Re: [ÓE] Miðstöðvarmótstöðu í Cherokee XJ

Posted: 11.mar 2014, 09:32
frá Siggi
Ekki málið