Síða 1 af 1

6 Port Fuel Dual Tank Selector

Posted: 06.feb 2014, 12:52
frá villi
Á einhver svona 6 porta eldsneytis loka fyrir mig

http://www.ebay.com/itm/161113261973

Kv Villi

Re: 6 Port Fuel Dual Tank Selector

Posted: 07.feb 2014, 13:21
frá Þráinn
Þetta er til í ljónsstöðum úr gamla econoline, þetta á til að bila þannig að ég myndi taka fyrirvara á því að kaupa notað

Re: 6 Port Fuel Dual Tank Selector

Posted: 07.feb 2014, 15:18
frá ellisnorra
Endilega kaupa þetta nýtt, það margborgar sig.
Ég skil ekki afhverju fleiri nota ekki svona búnað frekar en dælur og vesen þegar menn eru með aukatanka. Þessi græja skiptir á milli þannig að þú getur verið með einn mæli (original) og hann mælir alltaf úr þeim tanki sem er verið að taka úr, vilji menn hafa það þannig tengt. Ég hef notað þetta með góðum árangri, auk þess sem þetta er original í mörgum gömlum amrískum tveggja tanka bílum.

Re: 6 Port Fuel Dual Tank Selector

Posted: 10.feb 2014, 23:31
frá villi
Takk fyrir þessar uppl. ég verslaði nýjan á ebay

Kv Villi

Re: 6 Port Fuel Dual Tank Selector

Posted: 11.feb 2014, 19:07
frá Grásleppa
Væri þetta set-up ekki rosalega þægilegt? Smekklegur rofi, gaumljós fyrir stöðu segulrofanna og slefið fer í sama tank og tekið er úr. Eins rosa sniðugt þegar maður keyrir á matarolíu að geta keyrt upp og drepið á, á hráolíu. Held sveimér að ég versli mér svona, þar sem ég keyri á matarolíu á sumrin :)

http://www.ebay.com/itm/2-x-Vegetable-o ... 3cdc1a89b6

Re: 6 Port Fuel Dual Tank Selector

Posted: 11.feb 2014, 19:20
frá villi
Þetta er nákvæmlega pælingin hjá mér Jóhann