Síða 1 af 1

Hvar fást filmur

Posted: 25.des 2013, 15:48
frá Eiður
ef ég ætlaði að filma bílinn hjá mér sem er y61 patrol hvar fengi ég sem dekkstar filmur á sem fæstar krónur

með fyrirframþökk fyrir svör, Eiður

Re: Hvar fást filmur

Posted: 25.des 2013, 15:56
frá Sævar Örn
ENSO í skeifunni, kostar lítið og getur fengið allt að 5% gegnsæi sem er basically alveg svart en sérð samt þokkalega út ef bjart er

Re: Hvar fást filmur

Posted: 25.des 2013, 19:11
frá Kárinn
Ef þú nennir ekki í bæinn þá held ég að Fagform eigi þetta líka

Re: Hvar fást filmur

Posted: 25.des 2013, 23:34
frá emmibe
Keypti þetta http://www.ebay.com/itm/3M-X-50CM-95-EC ... 35badb25e0 sést ekkert inn en það sést ágætlega út.

Re: Hvar fást filmur

Posted: 26.des 2013, 12:38
frá jeepson
Bílanaust uppá höfða er með flimur líka.

Re: Hvar fást filmur

Posted: 26.des 2013, 15:56
frá halldorrj
Filmurnar í enso í skeifunni eru flimurnar sem allar filmu ísetninga verkstæði eru að nota, ef þú kaupir filmur í bílanaust þà færðu bara fjólubláar filmur eftir smástund