Síða 1 af 1

Ó/E Gormum

Posted: 30.maí 2013, 18:06
frá kristinnjon
óska eftir gormum fyrir 38" breyttan wrangler, progressiva Range rover gorma eða eitthvað svipað.
Kristinn s. 8459228

Re: Ó/E Gormum

Posted: 18.jún 2013, 22:58
frá kristinnjon
... vantar enn gorma

Re: Ó/E Gormum

Posted: 19.jún 2013, 00:10
frá solemio
á patrol gorma úr gamla bílnum,eru örugglega flottir í þennan og fást á lítið

Re: Ó/E Gormum

Posted: 19.jún 2013, 00:55
frá Kiddi
Ég myndi skoða einhverja góða lift gorma frá USA ef þú leggst aðeins yfir þetta á netinu þá er haugur til um þetta og áreiðanlega hægt að finna eitthvað sem passar flott á sanngjörnu verði.
Range Rover gormarnir eru að mínu mati drasl og þá sérstaklega prógressívu, var með svoleiðis að aftan í Wrangler og prógressívu hringirnir lögðust bara saman strax og þetta varð bara extra stíft! Alveg ferlegt, mæli ekki með því!

Re: Ó/E Gormum

Posted: 19.jún 2013, 01:04
frá Stjáni Blái
Þessir reinsróver gormar hafa líklegast lekið prógressífugormaolíuni á mettíma, enda ættaðir frá breska heimsveldinu !

Annars setti ég prógressífa Moog gorma í 38" ZJ um daginn og er hæst ánægður með þá, skal finna númerin af þeim á morgun og setja hér inn. Þessa gorma frá Moog er hægt að fá í hinum ýmsu stífleikum, þeir eru einnig á mjög fínu verði að mínu mati.

Re: Ó/E Gormum

Posted: 23.jún 2013, 13:59
frá kristinnjon
Takk fyrir svörin. Ég ætla skoða gorma að utan. Er mjög heitur fyrir moog gormum, Stjáni það væri flott ef þú gætir sent mér númerin á gormunum sem þú settir undir þinn.