Síða 1 af 1
Vantar lægri hlutföll í suzuki jimny.
Posted: 09.maí 2013, 10:28
frá Aparass
Eins og titill segir þá er ég að leita mér að lægri hlutföllum í jimny, það geta verið hásingar með lægri hlutföllum eða annar millikassi með skriðgír eða millikassi úr nýlegum sjálfskiptum bíl, mér skilst að hann sé með lægri hlutföllum.
Endilega látið mig vita ef þið lumið á svona hlutum og einnig hvaða verðhugmynd sé í gangi.
Hǽgt að senda mér skiló hér eða á
mainman@nude.isKv.
Re: Vantar lægri hlutföll í suzuki jimny.
Posted: 09.maí 2013, 19:25
frá Aparass
Enginn sem á svona í skúrnum hjá sér ?
Re: Vantar lægri hlutföll í suzuki jimny.
Posted: 10.maí 2013, 10:36
frá juddi
Hvaða árgerð er bíllin ?
Re: Vantar lægri hlutföll í suzuki jimny.
Posted: 10.maí 2013, 20:45
frá Aparass
Hann er 2002 minnir mig.
Re: Vantar lægri hlutföll í suzuki jimny.
Posted: 11.maí 2013, 19:49
frá juddi
Þ'a ætti að duga að setja millikassa úr eldri bílnum( á hann til ) og þá er hann akkurat réttur á 35"
Re: Vantar lægri hlutföll í suzuki jimny.
Posted: 11.maí 2013, 22:04
frá Aparass
Hvenær skiptist þetta?
Hvað er "eldri bíllinn" gamall ?
Re: Vantar lægri hlutföll í suzuki jimny.
Posted: 12.maí 2013, 00:21
frá juddi
1998-2000 er eftir því sem ég best veit með niðurgíraðan millikassa 1:1,52 og 1:3,909 drif en nýrri bílar með vvt mótor með kassa sem er 1 á móti einum og 1:4.3 drif