Síða 1 af 1
GM/dodge np205
Posted: 22.mar 2013, 13:57
frá Hjörturinn
Daginn.
Ekki lumar einhver á NP205 frístandandi millikassa úr gm eða dodge (framdrifið farþegamegin)?
Hjörtur
hjorturinn@gmail.com eða PM
Re: GM/dodge np205
Posted: 22.mar 2013, 17:27
frá ellisnorra
Ég held að þetta séu alveg fjandi sjaldgæfir kassar. Það er einn ford kassi hérna núna til sölu, spurning hvort það sé möguleiki fyrir þig að fá vinstri-kúlu framhásingu og redda þessu þannig?
Re: GM/dodge np205
Posted: 22.mar 2013, 17:54
frá Hjörturinn
Nei þetta er ætlað í 6x6 draumóra, datt nú í hug að þetta væri soldið vesen, veit ekki heldur hvort það væri ráðlegt að snúa ford kassanum á hvolf, en það myndi redda þessu.
Re: GM/dodge np205
Posted: 22.mar 2013, 18:40
frá jeepcj7
Hvers vegna frístandandi kassa er ekki venjan að nota venjulegan kassa í þetta mix?
Re: GM/dodge np205
Posted: 22.mar 2013, 18:57
frá SævarM
ég á allavega kassa sem er með farþega droppi enn ekki frístandandi og það vantar á hann aftur yokann enn hann er líka á ofur verði miðað við ford kassann hérna frístandandi
Re: GM/dodge np205
Posted: 22.mar 2013, 19:42
frá Hjörturinn
myndi ekki ætla að festa kassann á hásinguna eins og ég hef séð, heldur hafa hann aðeins fyrir aftan aðal millikassann, er svo með offsettaða og miðjusetta hásingar að aftan.
Er ekki heilmikið mál að breyta venjulegum kassa í frístandandi?
Re: GM/dodge np205
Posted: 22.mar 2013, 20:01
frá LFS
getur verið að þessir kassar hafi verið i chevrolet k5 blazer og k30 pikkum eða var það 203 ?
Re: GM/dodge np205
Posted: 22.mar 2013, 21:07
frá ellisnorra
Er ekki möguleiki að taka drifið fyrir öftustu hásinguna út út kassanum beint á móti framdrifinu? Mig minnir að ég hafi séð þetta svona einhverstaðar.
Re: GM/dodge np205
Posted: 22.mar 2013, 21:32
frá jeepcj7
Ég á til stóran millikassahlunk vestur í sveit sem er frístandandi með hægra drop og kemur að ég held úr weapon eða einhverju svoleiðis.
Hann átti að nota á sínum tíma til að gera afturdrifs dodge pickup að 4x4 og svo seinna meir að setja í hann V8 caterpillar 3208 með skiptingu,stuff sem kom úr gmc vörubíl.En hvað um það ef þig vantar frístandandi millikassa getur þú fengið þennan á slikk hvað svo sem sett er á hann á ebay. ;o)
Re: GM/dodge np205
Posted: 23.mar 2013, 10:07
frá haflidason
ég á einn dana24 (frístandandi) sem þú mátt eiga. þarf sennilega að kíkja á legur eftir að standa mjög lengi. fer bara í gáminn annars.