Síða 1 af 1

óska eftir rafgeymi,

Posted: 08.feb 2010, 12:30
frá Andri M.
ekki vill svo heppilega til að það sé einhver hérna sem liggur á rafgeymi, þetta er í 1997 árg, af mazda 323, svo menn hafi kannski einhverja hugmynd um stærð geymissins, og eg tími ekki að kaupa nýjan fyrir tæpan 20 þús,

ef þið vitið um einhvern sem á geymi, eða eigið sjálf, endilega bjallið í mig, í síma 847-1382

Re: óska eftir rafgeymi,

Posted: 08.feb 2010, 12:51
frá Sævar Örn
Fékk í sumar mjög fallegan nýlegan geymi í Vöku á 4000 kall sá geymir var reffilegur og 60aH en 140 startaH en það vildi svo til að ég seldi kvikindið með lödu sem ég keypti geyminn fyrir. En svona var verðlagningin á þessu í sumar það má vel vera að það hækki þegar kólnar úti.

Skoðaðu það allavega, þetta var glænýr geymir eða þ.e. úr klesstum 2009 bíl.

Re: óska eftir rafgeymi,

Posted: 08.feb 2010, 13:06
frá EinarR
Held að vaka sé eini valkosturinn. ég hef sjálfur verið að leita af geymi ódýrt og það var ekki á hverju strái.

Re: óska eftir rafgeymi,

Posted: 08.feb 2010, 13:09
frá Andri M.
hringdi upp í vöku áðan, (sem er ekki það skemmtilegasta í heimi, maður þarf yfirleitt að bíða í lágmark 10-15 mín áður en maður nær sambandi)

og þeir sögðu að þeir ættu þetta ekki til, og bentu mer á litlu partasöluna, svo eg hringdi þangað og gaurinn þar sagði að þetta væri til á venjulegum partasölum og að maður ætti að vera duglegur að hringja á nógu marga staði til að reyna að grafa þetta upp

Re: óska eftir rafgeymi,

Posted: 08.feb 2010, 13:19
frá gislisveri
Ef Vaka er ekki langt úr leið fyrir þig, þá er um að gera að koma við þar t.d. 2-3 í viku, þetta dettur inn reglulega held ég. Svo þegar þeir eru orðnir leiðir á þér hljóta þeir að bjóðast til að taka frá og hringja :)

Re: óska eftir rafgeymi,

Posted: 08.feb 2010, 13:21
frá Andri M.
ef það væri svo gott að maður hefði bil, og gæti skotist reglulega upp í vöku og tjékkað, en maður verður bara að vera duglegur að hringja í staðinn,