Síða 1 af 1

Millikælir fyrir sjálfskiptingu

Posted: 14.feb 2013, 16:10
frá frikki
Strákar mig vantar millikæli á sjálfskiptinguna hjá mer.
Þetta er patrol 95 .

simi 820 8801

kkv
Frikki

Re: Millikælir fyrir sjálfskiptingu

Posted: 14.feb 2013, 16:37
frá sukkaturbo
Sæll félagi smá hugmynd prufaðu að nota smurolíukæli úr disel patrol er í flestum patrol bílum kveðja guðni

Re: Millikælir fyrir sjálfskiptingu

Posted: 14.feb 2013, 17:36
frá juddi
Ljónstaðir

Re: Millikælir fyrir sjálfskiptingu

Posted: 14.feb 2013, 17:39
frá Oskar K
Ebay

Re: Millikælir fyrir sjálfskiptingu

Posted: 14.feb 2013, 18:08
frá Gunnar
sá í bílanaust temmilega stóran sjálfskiptikæli, kostaði um 15.000 minnir mig, svo er benni með helling af kælum

Re: Millikælir fyrir sjálfskiptingu

Posted: 14.feb 2013, 21:23
frá Gormur
Ættlaru að tengja nýja kælinn fyrir eða eftir orginal kælinn? Eða nota hann eingöngu?

Re: Millikælir fyrir sjálfskiptingu

Posted: 14.feb 2013, 23:00
frá ellisnorra
Ég hef notað gamla AC kæla með góðum árangri, þeir eru kannski til einhversstaðar original bolt on í pattann þinn.

Re: Millikælir fyrir sjálfskiptingu

Posted: 14.feb 2013, 23:40
frá Freyr
Smurolíukælir í patrol er með hitaventli, hleypir olíunni s.s. ekki í gegnum elementið heldur bara eftir öðrum botninum frammhjá honum þar til vissum hita er náð. Það er sniðugt en háð því að ventillinn virki rétt, ef hann stendur á sér og opnar ekki gerir kælirinn ekkert. Mæli frekar með kæli sem er bara bacis og kælir alltaf, hvort sem hann er eins og vatnskassi eða með eina pípu sem fer nokkra hlykki. Varðandi tenginguna þá skaltu alls ekki setja hann eftir kælinn í vatnskassanum því þá er skiptingin alltaf ísköld nema í miklum átökum. Láta olíuna fara fyrst gegnum aukakælinn og svo þann í vatnskassanum. Þá virkar vatnskassinn sem thermostat fyrir olíuna og leitast við að halda henni alltaf jafn heitri, kælir hana í miklum átökum þar sem aukakælirinn dugar ekki en er annars að hita hana í öllum normal akstri.

Hef sjálfur keypt mína aukakæla í H.Jónsson og verið sáttur með þá.

Freyr

Re: Millikælir fyrir sjálfskiptingu

Posted: 15.feb 2013, 07:57
frá frikki
Freyr wrote:Smurolíukælir í patrol er með hitaventli, hleypir olíunni s.s. ekki í gegnum elementið heldur bara eftir öðrum botninum frammhjá honum þar til vissum hita er náð. Það er sniðugt en háð því að ventillinn virki rétt, ef hann stendur á sér og opnar ekki gerir kælirinn ekkert. Mæli frekar með kæli sem er bara bacis og kælir alltaf, hvort sem hann er eins og vatnskassi eða með eina pípu sem fer nokkra hlykki. Varðandi tenginguna þá skaltu alls ekki setja hann eftir kælinn í vatnskassanum því þá er skiptingin alltaf ísköld nema í miklum átökum. Láta olíuna fara fyrst gegnum aukakælinn og svo þann í vatnskassanum. Þá virkar vatnskassinn sem thermostat fyrir olíuna og leitast við að halda henni alltaf jafn heitri, kælir hana í miklum átökum þar sem aukakælirinn dugar ekki en er annars að hita hana í öllum normal akstri.

Hef sjálfur keypt mína aukakæla í H.Jónsson og verið sáttur með þá.

Freyr

Ok flott mál.

Eg reddaði mer bara oliukæli ur 3l patrol og ætla að nota hann er það ekki að vika ágætlega

kkv
Frikki