Síða 1 af 1

Óe Np208 millikassa

Posted: 27.jan 2013, 14:42
frá fox
Sælir mig vantar np 208 millikassa Kv Þórir 6968815

Re: Óe Np208 millikassa

Posted: 28.jan 2013, 20:16
frá jeepcj7
Það eru til 3 útgáfur af 208 ford,dodge og chevy hvern vantar þig?

Re: Óe Np208 millikassa

Posted: 28.jan 2013, 21:30
frá fox
Chevy hver er munurinn

Kv Þórir

Re: Óe Np208 millikassa

Posted: 28.jan 2013, 21:41
frá ellisnorra
fox wrote:Chevy hver er munurinn

Kv Þórir


Húsið á þeim er mismunandi til að passa aftan á hina og þessa gírkassa/sjálfskiptingar. Einnig er misjafnt hvoru megin framdrifið er, þe hægri eða vinstri drifkúla.

Ég veit ekki með innvolsið en þó finnst mér líklegt að það sé svipað milli f/d/c.

Re: Óe Np208 millikassa

Posted: 28.jan 2013, 21:55
frá Kiddi
Ég var með svona í höndunum fyrir nokkrum árum, þá Dodge og Chevy kassa.
Þeir eru báðir með framdrifið farþegamegin en gatadeilingin sem snýr að skiptingunni snýr öðruvísi, s.s. halla mismunandi. Chevy millikassinn var því sem næst lóðréttur í bílnum á meðan Dodge úrtakið var hærra frá jörðu.
Dodge-inn var með fastan flangs að aftan og dragliðinn á drifskaptinu en Chevy-inn var með dragliðinn í kassanum.
Innvolsið gekk á milli semsagt keðjan og plánetugírinn.

Ford millikassinn er síðan með framdrifið bílstjóramegin.

Re: Óe Np208 millikassa

Posted: 28.jan 2013, 22:09
frá jeepcj7
Keðjan er lengri í ford og ss. allur kassinn/lærið er lengra líka ef ég man rétt og svo er auðvitað kúlan réttu megin í ford vm. ;O)

Re: Óe Np208 millikassa

Posted: 28.jan 2013, 22:30
frá Stebbi
Svo er Chevy annað hvort 27(700r4) eða 32(TH400) rillu á meðan Ford er 31 rillu. Man ekki hvað Dodge notar.

Re: Óe Np208 millikassa

Posted: 28.jan 2013, 22:40
frá jeepcj7
Dodge er 23 rillur

Re: Óe Np208 millikassa

Posted: 28.jan 2013, 23:24
frá fox
Sælir strákar

Takk fyrir svörin búinn að rífa úr kassinn er Chevy og inn eru 27 rillur ef einhver veit um svona endilega bjalla

Kv Þórir 6968815

Re: Óe Np208 millikassa

Posted: 28.jan 2013, 23:27
frá ellisnorra
Það eru 32 rillur í kassann minn sem er aftan af sm465 kassanum (4 gíra trukkaboxinu), ef það hjálpar þér að leita.

Re: Óe Np208 millikassa

Posted: 29.jan 2013, 23:41
frá fox
Vantar enn np 208 kemur allavega úr suburban 1981-1987 að ég held

Kv Þórir

Re: Óe Np208 millikassa

Posted: 30.jan 2013, 00:32
frá Stebbi
Stebbi wrote:Svo er Chevy annað hvort 27(700r4) eða 32(TH400) rillu


Þú þarft að vita hvor skiptingin það er.

Re: Óe Np208 millikassa

Posted: 30.jan 2013, 10:23
frá Gudni Thor
Stebbi wrote:
Stebbi wrote:Svo er Chevy annað hvort 27(700r4) eða 32(TH400) rillu


Þú þarft að vita hvor skiptingin það er.

hann segist vera búinn ad rífa úr og telja 27 rilur semsagt 700r4 skipting, passar thá einnig af th350.

Re: Óe Np208 millikassa

Posted: 30.jan 2013, 10:29
frá ellisnorra
viewtopic.php?f=31&t=15803


Svona smellur þetta allt saman strákar mínir :)