Toyota v6 vél til sölu , 3vze

User avatar

Höfundur þráðar
JonHrafn
Innlegg: 578
Skráður: 06.feb 2010, 10:41
Fullt nafn: Jón Hrafn Karlsson
Staðsetning: Keflavík south

Toyota v6 vél til sölu , 3vze

Postfrá JonHrafn » 29.maí 2010, 20:11

Vélin úr Hi-Runnernum okkar er til sölu.

Vélin selst með sjálfskiptingu, millikassa og öllu sem henni tilheyrir, allt frá loftsíuboxi upp í vélatölvu og rafloom.

Vélin er keyrð um 220þús, 6000 í okkar eigu. Árgerð 1993 minnir mig. Það sem við erum búnir að gera við hana er að skipta um vatnslás, pakkdós milli skiptingar og vélar, ventalokspakkningar, spíssaþéttingar, soggreinapakkning og tímareim. Man ekki eftir meiru í bili.Vélina keyptum við síðasta haust, mig minnir að það hafi verið nýbúinn að skipta um allt í kveikjunni og eitthvað fleira.

Eina sem þyrfti að athuga er smit aftan á stýrisdælunni, sem virðist vera einhver sjúkdómur því sama smit er aftan á hinum tveimur vara stýrisdælunum sem fylgja með.

Einnig er á henni flækjur og 2,5" hvarfakútur gæti jafnvel fylgt með.

Í bónus eru 2 partavélar, ein er heil en hin er rifin.

Tilboð óskast,, í einkaskilaboði email jonhrafn@hotmail.com eða sími 6941259




andri_arnason
Innlegg: 54
Skráður: 01.feb 2010, 23:53
Fullt nafn: Andri Árnason

Re: Toyota v6 vél til sölu , 3vze

Postfrá andri_arnason » 30.maí 2010, 03:48

hvað viltu fá fyirr hana svar óskast í ep
Kv. Andri Árnasaon


Magnús Ingi
Innlegg: 167
Skráður: 18.feb 2010, 15:34
Fullt nafn: Magnús Ingi Gunnarsson
Bíltegund: Toyota 4Runner

Re: Toyota v6 vél til sölu , 3vze

Postfrá Magnús Ingi » 30.maí 2010, 14:40

Viltu selja flækjur sér??

User avatar

Höfundur þráðar
JonHrafn
Innlegg: 578
Skráður: 06.feb 2010, 10:41
Fullt nafn: Jón Hrafn Karlsson
Staðsetning: Keflavík south

Re: Toyota v6 vél til sölu , 3vze

Postfrá JonHrafn » 30.maí 2010, 15:48

Magnús Ingi wrote:Viltu selja flækjur sér??


Nei, ætla reyna selja þetta í heilu lagi.


Til baka á “Vara og aukahlutir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 44 gestir