Síða 1 af 1

2.4 dísel -- ALLT SELT

Posted: 22.jún 2012, 16:46
frá ellisnorra


SELT




Ég er með talsvert af mótordóti, 2l-t

Heill mótor með öllu nema túrbínu. Þessi mótor er eitthvað bilaður, var millibilsmótor hjá mér meðan ég var að yfirfara annan sem átti að vera framtíðarmótor. Hann er keyrður eitthvað aðeins yfir 300 þúsund og fór að víbra hjá mér. Gekk ágætlega að mig minnir en víbraði mikið. Ég gáði aldrei hvað var að, reif hann bara uppúr og setti góða mótorinn í staðinn. Síðan seldi ég túbínuna af honum. Original turbo mótor úr lc 70, heitir 2l-t.

Svo er til önnur blokk af eins mótor. Hann sprengdi á sér heddið (sprungur á milli ventla) svo ég henti heddinu. Bara shortblock með stimplum, sveifarás og tilheyrandi. Keyrt alveg áræðanlega minnir mig 250þúsund.

Þriðji mótorinn er 2l-2. Original nonturbo, minnir 91 módel og ekki með rockerörmum. Búinn að rífa hedd frá blokk og það er tvísýnt að heddið sé í lagi en það er aðeins farið að springa milli ventla. Það var samt ekki hitavandamál á þessum mótor. Ég keypti þetta til að nota í varahluti, það eina sem var að þessu var að hann hristi damperinn framan af sér (boltinn ekki nóg eða óhertur) og ég held að sveifarásendinn sé eitthvað örlítið kjagaður.

Svo er fullt af dótaríi sem fylgir þessu, að mig minnir 2 alternatorar, 1 stýrisdæla án brakkets og allskonar mótoraukahlutir. Sennilega tvær frekar en þrjár kúplingar.

Verð fyrir mótopakkann er fast, 30 þúsund. Selst allt saman í einum pakka.

Gírkassa á ég líka, w56 kassi með millikassa úr bensínbíl keyrður 216 þúsund. Þessi var í bílnum hjá mér, er með kúplingshúsi fyrir dísel en ég á kúplingshús fyrir bensín líka. Mjög góður kassi. 25þúsund held ég að sé sanngjarnt fyrir hann. Fæst fyrir 10 þúsund sé hann tekinn með mótopakkanum


Best væri að spjalla um þetta símleiðis, 8666443. PM eða email elliofur@vesturland.is virkar líka.

Re: 2.4 dísel lc70/hilux mótorar, gírkassi og túrbína

Posted: 22.jún 2012, 17:01
frá villi58
Sæll!
Hvernig er ástandið á túrbínunni og passar hún á 2,4 Hilux mótorinn, (greinina)orginal túrbogrein frá Toyota ?
Best að fá upplýsingar á villi58@talnet.is

Re: 2.4 dísel lc70/hilux mótorar, gírkassi og túrbína

Posted: 22.jún 2012, 17:30
frá ellisnorra
villi58 wrote:Sæll!
Hvernig er ástandið á túrbínunni og passar hún á 2,4 Hilux mótorinn, (greinina)orginal túrbogrein frá Toyota ?
Best að fá upplýsingar á villi58@talnet.is


Ástandið á henni er alveg ágætt. Ég veit ekki hvort hún passi beint, hef aldrei borið hana við. Líklegra er auðvitað að hún passi ekki beint en smíði á millistykki er hinsvegar mjög einföld.

Re: 2.4 dísel lc70/hilux mótorar, gírkassi og túrbína

Posted: 22.jún 2012, 21:40
frá ellisnorra
Túrbínan er komin í pant ef mótorpakkinn fer ekki strax.
Mótorpakkinn er vitaskuld mun fýsilegri ef með honum fæst túrbína.

Re: 2.4 dísel lc70/hilux mótorar, gírkassi og túrbína

Posted: 23.jún 2012, 15:02
frá ellisnorra
upp

Re: 2.4 dísel lc70/hilux mótorar, gírkassi og túrbína

Posted: 24.jún 2012, 11:33
frá ellisnorra
Mig vantar að losna við þetta, tekur verðmætt pláss í skúrnum :) 50þús fyrir allt mótordót MEÐ túrbínunni.
70þús og kassarnir fara með.

Re: 2.4 dísel lc70/hilux mótorar, gírkassi og túrbína

Posted: 25.jún 2012, 08:42
frá ellisnorra
upp :)

Re: 2.4 dísel lc70/hilux mótorar, gírkassi og túrbína

Posted: 09.júl 2012, 08:11
frá ellisnorra
Túrbínan er farin. Ég þarf að losna við þetta, 30þúsund fyrir mótordótið og 25 fyrir gírkassana, en ég læt þetta á 40 þúsund allt saman. Til afhendingar strax.

Re: 2.4 dísel lc70/hilux mótorar, gírkassi og túrbína

Posted: 22.júl 2012, 17:53
frá ellisnorra
Ýtum þessu upp. Þetta þarf að fara, mig vantar plássið í skúrnum og plássið í veskinu er óþarflega mikið :)

Re: 2.4 dísel lc70/hilux mótorar, gírkassi og túrbína

Posted: 03.sep 2012, 08:00
frá ellisnorra
Hvernig er það, er engu sem vantar varahluti? Alternatorar, olíuverk og allskonar...