Síða 1 af 1
óska eftir hásingum
Posted: 04.jún 2012, 19:26
frá eggerth
óska eftir dana 44 framhásingu með kúluna hægramegin og 9" ford afturhásingu helst læstar, þetta á að fara undir Range Rover. ef þið hafið aðrar hugmyndir um gerð á hásingum undir þennan bíl þá má endilega setja þær inn hér ;)
með fyrirfram þökk
Eggert Helgi
Re: óska eftir hásingum
Posted: 04.jún 2012, 20:14
frá jeepcj7
Patrolhásingar eru alveg málið undir rover ekki spurning orginal hlutfallið í patrol er 4.62 sem er nánast það sama og gamla land rover hlutfallið sem er 4.70 og ef menn vilja er hægt að fá enn lægra td.5.4 .
Svo er patrol með diskabremsur framan og aftan og handbremsuna á millikassanum eins og rangeinn.
Og flestir pattar eru með vacum lás að aftan sem einnig er plús.
Og kúlan að framan er sömu megin líka.
Re: óska eftir hásingum
Posted: 05.jún 2012, 07:53
frá eggerth
jeepcj7 wrote:Patrolhásingar eru alveg málið undir rover ekki spurning orginal hlutfallið í patrol er 4.62 sem er nánast það sama og gamla land rover hlutfallið sem er 4.70 og ef menn vilja er hægt að fá enn lægra td.5.4 .
Svo er patrol með diskabremsur framan og aftan og handbremsuna á millikassanum eins og rangeinn.
Og flestir pattar eru með vacum lás að aftan sem einnig er plús.
Og kúlan að framan er sömu megin líka.
jájá eg hef svolítið verið að skoða þær en hjólalegurnar að framan virðast alldrei vera til friðs nema að það sé skipt um feitina á mánaðarfresti, en ef einhver á svona hásingar má endilega láta vita, þá vantar mig mjög líklega patrol millikassa líka vegna þess að kúlan er til hliðar að aftan eins og á 60 cruser ;)
Re: óska eftir hásingum
Posted: 05.jún 2012, 11:27
frá ivar
ég á amk patrol millikassa og tómt framhásingarrör :)
Sjálfur hef ég ekkert svo slæmt útá framhjólalegurnar í patrol að setja og myndi ekkert gefa þeim verri einkunn en d44. Alltaf er þetta spurning um hvaða notkunn er á dótinu.
Re: óska eftir hásingum
Posted: 05.jún 2012, 14:31
frá solemio
á handa þér framhásingu dana44 á eitthvað sanngjarnt.er með diskum og dælum
Re: óska eftir hásingum
Posted: 05.jún 2012, 18:19
frá eggerth
ivar wrote:ég á amk patrol millikassa og tómt framhásingarrör :)
Sjálfur hef ég ekkert svo slæmt útá framhjólalegurnar í patrol að setja og myndi ekkert gefa þeim verri einkunn en d44. Alltaf er þetta spurning um hvaða notkunn er á dótinu.
hvað viltu fá fyrir millikassann?
Re: óska eftir hásingum
Posted: 05.jún 2012, 18:21
frá eggerth
solemio wrote:á handa þér framhásingu dana44 á eitthvað sanngjarnt.er með diskum og dælum
já eg skal endilega skoða það, langar að fara í beytingar í sumar, sendu mér endilega verðhugmynd í skilaboðum ;)