Síða 1 af 1

Veit einhver verðið á at dekkjunum ?

Posted: 16.nóv 2011, 01:45
frá Burri
Sá að arctic eru komnir med dekkjasendinguna. Veit einhver verðið á AT dekkinu hjá þeim núna?

Re: Veit einhver verðið á at dekkjunum ?

Posted: 16.nóv 2011, 10:48
frá juddi
http://www.arctictrucks.is/


Kletthálsi 3 // 110 Reykjavík // Ísland
Sími: 540 4900 // Fax: 540 4901 // info@arctictrucks.is

Re: Veit einhver verðið á at dekkjunum ?

Posted: 16.nóv 2011, 10:56
frá karig
Dekkið kostar 99.900 stk, felgur ekki til en á leiðinni, sem koma til með að kosta um 50.000 stk, þannig að gangurinn er 600.000 fyrir utan að koma þessu á felgur og jafnvægisstilla, sum sé ekki alveg fríkeypis, kv, kári.

Re: Veit einhver verðið á at dekkjunum ?

Posted: 16.nóv 2011, 11:00
frá Hagalín
Svo er nú bara þannig að það gengur enginn út með minna en 10-15% afslátt ef menn kaupa heilan gang. Allavega þannig hjá N1 sem geta selt þessi dekk líka.

Re: Veit einhver verðið á at dekkjunum ?

Posted: 16.nóv 2011, 13:57
frá Burri
spurning um að fá sér 600 þús króna vélsleða i staðinn ; )

Re: Veit einhver verðið á at dekkjunum ?

Posted: 16.nóv 2011, 15:07
frá Kalli
Burri wrote:spurning um að fá sér 600 þús króna vélsleða i staðinn ; )

akkúrat þetta er nátturulega bilun.

Re: Veit einhver verðið á at dekkjunum ?

Posted: 16.nóv 2011, 16:54
frá gaz69m
en hafa menn eithvað reynt að flytja inn dekk sjálfir

Re: Veit einhver verðið á at dekkjunum ?

Posted: 16.nóv 2011, 18:43
frá RunarG
er það nokkuð ódýrara að flytja sjálfur inn? kanski eitthverjum krónum en svo lítið að það tekur því varla að standa í því!

Re: Veit einhver verðið á at dekkjunum ?

Posted: 16.nóv 2011, 19:21
frá Palli
RunarG wrote:er það nokkuð ódýrara að flytja sjálfur inn? kanski eitthverjum krónum en svo lítið að það tekur því varla að standa í því!


getur samt alveg munað 100-200 kalli.. hef verslað dekk að utan gegnum shop usa og það getur alveg munað helming. en það fer oft eftir tegund og við hvern þú verslar...

Re: Veit einhver verðið á at dekkjunum ?

Posted: 17.nóv 2011, 21:13
frá kjartanbj
ég keypti gang þarna um daginn, 335þús ca með afslætti, átti til felgur og fékk svo ódýra umfelgun á einum stað. kostaði allt í allt eitthvað um 345þús undir komið hjá mér
hlakka til að komast í snjó og prufa