Síða 1 af 1

óe 8 bolta felgum

Posted: 17.feb 2018, 22:19
frá petrolhead
Á einhver 16x12 ál eða stálfelgur með 8x6,5" / 8x165,1 deilingu,skoða líka 7-8" stálfelgur sem gott er að breykka.

Þeir sem eiga eitthvað svona sem þeir vilja sjá af meiga gjarnan hafa samband við mig á netfangið gardartr@gmail.com

MBK
Garðar

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 26.feb 2018, 10:24
frá petrolhead
Vantar ennþá !

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 26.feb 2018, 19:03
frá Sævar Örn
ég á 15x16" 8 bolta felgur var hugsað fyrir 44" dekk ef þú vilt þær eru ekki mikið notaðar og ég notaði þær ekki neitt þetta var undir sprinter á 44"

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 26.feb 2018, 22:17
frá petrolhead
Takk fyrir Sævar, en ég held að 15" sé of mikil breydd....og kannski of langt gengið að fara að mjókka felgur nema ekkert annað bjóðist
MBK
Garðar

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 27.feb 2018, 16:09
frá Startarinn
Ef þú ert að pæla í 41" þá er 15" allt í lagi

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 27.feb 2018, 16:29
frá Sævar Örn
minar eru þvi miður 15tommu haar 16t breiðar

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 27.feb 2018, 22:09
frá petrolhead
Er ekki frekar frekt að setja 14,5 tommu breið dekk á 15 tommu breiðar felgur ?

hehe, smá misskilningur í hlutföllunum hjá okkur Sævar :-)

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 28.feb 2018, 19:46
frá Startarinn
Jónbi hafði samband við mig til að spyrja hvað ég hefði gert, mig minnir að mínar felgur séu 15" breiðar, allavega standa þær aðeins út fyrir dekkin.
Ég skal tékka á þessu þegar ég kem heim eftir helgi

Annars man ég eftir því fyrir 20 árum eða svo að hafa lesið utan á 44" Dick cepek dekkin, þar stóð "approved rim 10-12" " En þetta stendur ekki utaná þeim lengur
Ég hef aldrei séð neinn nota 44" dekk á svo mjóum felgum.

Re: óe 8 bolta felgum--KOMIÐ

Posted: 28.feb 2018, 23:21
frá petrolhead
Kominn með felgur :-)

Svo þú þekkir gamla skarfinn á Króknum :-) Það er nú góðs viti þá hlýtur að vera eitthvað að marka það sem þú segir :-D

Ég setti, fyrir margt löngu 44DC á 12" felgur og var fljótur að taka þau af og bæta 3" inn í felgurnar, hefði ekki boðið í þetta á 10" felgum.

Það verður gaman að heyra hvað þínar eru breiðar, annars minnist ég þess að hafa einhvern tíma heyrt að það væri gott að hafa felgu u.þ.b. 1" mjórri en uppgefin breidd á dekki svo eftir því lögmáli ætti að vera gott að hafa 13,5" felgu á 14,5" dekk ?? sel ekki dýrara en mér var gefið !!!
En það skiptir etv. máli líka að ég er ekki að hleypa úr nema í neyð svo ég er ekki endilega að sækjast eftir að fá stærri flöt með úrhleypingu, frekar að fá bílinn góðan í akstri.

MBK
Gæi

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 01.mar 2018, 09:30
frá Startarinn
Þá ætti 12 tommu felga að vera kappnóg, jafnvel 10, en það er engin ástæða til að setja auka álag á legurnar ef maður hefur ekki þörf fyrir það

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 02.mar 2018, 07:59
frá petrolhead
Ég er trúlega búinn að fá original felgur sem ég fæ svo sameiginlegan vin okkar til að breikka og var að gæla við 13" ???? en 12" er kannski alveg nóg...nú er brostið á með valkvíða :-p
Það er hverju orði sannara hjá þér að það er óþarfi að leggja meira á legurnar en maður þarf, sérlega þar sem Raminn er á þessu unit legu dóti sem er nú ekki mjög burðugt !

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 02.mar 2018, 19:52
frá Startarinn
Jónbi valsaði einmitt efnið í mínar breikkanir
Farðu í 13".
Það er aldrei að vita nema þú viljir nota felgurnar í eitthvað annað síðar, þá er meira betra :)

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 03.mar 2018, 10:56
frá petrolhead
Þakka veitta aðstoð við að vinna bug á valkvíðanum...13" skulu það verða.
Jónbi kallinn tók að sér að sjá um að breikka þær, sem ég var ánægður með því hann er fanta góður suðumaður kallinn :-)

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 15.mar 2018, 22:50
frá Startarinn
Ég mældi mínar, ég fór í rúmlega 15", mig minnir að breikkanirnar hafi verið 25 cm og og orginal felgan sennilega um 5,5 tommur þegar ég var búinn að skera fyrri breikkun úr þeim

20180314_193556.jpg
20180314_193556.jpg (5.49 MiB) Viewed 5225 times

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 16.mar 2018, 14:49
frá petrolhead
Þetta kemur nú bara vel út hjá þér með 15" "lookar" svo maður láti nú eftir sé að sletta aðeins, ansi vel en ég held að 13" sé alveg málið fyrir mína notkun. Þú ert með sömu dekk og ég, er það ekki, Irok 41x14,5 ?

MBK
Gæi

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 16.mar 2018, 20:00
frá Startarinn
Jú, sama stærð.
Ég er að gefast upp á þessum dekkjum, ég keypti gang sem vantar 1 dekk í og er búinn að fara gegnum 4 grautfúin dekk í stað þessa eina sem vantar, hugsa að ég selji þessi 3 sem eru í lagi.

Re: óe 8 bolta felgum

Posted: 16.mar 2018, 22:46
frá petrolhead
AHH, ég skil og þess vegna er hann bara að þremur á myndinni. Það er náttúrulega hundleiðinlegt að standa í svona brasi :-/
Ég hef svo sem heyrt misjafnar sögur af þessum dekkjum en reyndar góðar líka svo ég ákvað að taka sénsinn....svo verður restin að koma í ljós, þetta fer þá aldrei verr en illa :-)