Síða 1 af 1

Vantar felgur fyrir Jeep Wrangler

Posted: 26.júl 2015, 11:36
frá olafurg
Daginn

Hvar finnur maður felgur í Reykjavík fyrir Jeep Wrangler? Einn félagi minn er á ferð um landið í vinahóp (allt útlendingar) og felgurnar eru farnar að leka. Hann bað mig að athuga hvort hægt sé að finna nýjar í Reykjavík, þeir eiga leið þar um á þriðjudag/miðvikudag.

Ég þekki ekki þessar stærðir almennilega, en þetta er það sem hann sendi á mig:

Custom rims for Jeep Wrangler, 17 x 8.5 and 5 x 5 inch

Ég var að skoða á http://dekkjasalan.is/ en fann ekki í fljótu bragði hvað passar. Öll aðstoð vel þegin.

Takk kærlega.

Re: Vantar felgur fyrir Jeep Wrangler

Posted: 27.júl 2015, 07:46
frá olafurg
Gatadeilingin er s.s. 5 x 5 inches, eða 5 x 127 millimetrar.

Búinn að komast að því að original Jeep Wrangler felgur eru 7,5" á breidd, meðan þessar eru 8". Er enn að leita...

Re: Vantar felgur fyrir Jeep Wrangler

Posted: 27.júl 2015, 12:33
frá Kiddi
Felgur undan Grand Cherokee 1999 og yngri ættu að passa. Ekki hafa of miklar áhyggjur af breiddinni.

Re: Vantar felgur fyrir Jeep Wrangler

Posted: 27.júl 2015, 14:47
frá Siggi_F
Fyrir ekki svo löngu átti N1 gang af JEEP felgum 5x127 á góðu verði.

Re: Vantar felgur fyrir Jeep Wrangler

Posted: 28.júl 2015, 11:09
frá olafurg
Takk fyrir svörin, þetta er að skríða saman. N1 á þetta og Dekkjasalan einnig. Þeir ætla að reyna að sjá fyrst hvort hægt sé að laga þær hjá Áliðn. Felgur.is er lokað til 10. ágúst.