1 stykki 38" mudder — 10 þúsund

User avatar

Höfundur þráðar
hvati
Innlegg: 113
Skráður: 20.jún 2012, 14:36
Fullt nafn: Sighvatur Halldórsson
Staðsetning: Mosfellsbær
Hafa samband:

1 stykki 38" mudder — 10 þúsund

Postfrá hvati » 28.sep 2014, 21:12

Var að taka til út á svölum og rakst þar á þetta forláta dekk sem mætti alveg finna sér nýjan samastað — helst á felgu undir bíl en það er samt alveg undir þér komið, kaupandi góður.

Þetta dekk er slitið og míkróskorið en með góðum dekkjahníf má alveg gefa því framhaldslíf.

Við skulum bara setja verðmiðann krónur 10.000.– á þetta. Ef þú hefur áhuga á því þá á ég annað sambærilegt dekk sem þú mátt taka í leiðinni þér að kostnaðarlausu en það er orðið frekar slasað á hliðunum en heldur lofti.

Svara öllum fyrirspurnum í einkaskilaboðum hér eða á póstfanginu sighvatur.h(at)gmail.com

— Hvati

P.S. Þessi dekk voru undir Y60 patrol.

Image

Image



Til baka á “Dekk og felgur”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 40 gestir