Síða 1 af 1
Felgur Santa FE -> Grand Vitara
Posted: 28.nóv 2010, 16:56
frá thor_man
Getur einhver hér upplýst um hvort felgur undan Hyundai Santa Fe passa undir Suzuki Grand Vitara, búið er að víkka miðjuna fyrir Hyundai jepplinga.
Re: Felgur Santa FE -> Grand Vitara
Posted: 28.nóv 2010, 17:03
frá Sævar Örn
súkkur til 2007 eru með 5x5", nýji santa fe er með 5x114.3mm, það er nýja grand vitaran líka, nýji kia sorento er hinsvegar með gamla kerfið.
Gamli santa fe er með stærri deilingu, gæti vel trúað að það sé 5x5", finn hvergi hyundai santa fe á töflum sem sína boltakerfi bíla.
Re: Felgur Santa FE -> Grand Vitara
Posted: 28.nóv 2010, 21:24
frá Kiddi
Rangt Sævar, gömlu Súkkurnar eru með 5x5.5", sem er mun algengari deiling en sú sem þú nefnir (ætla ekki að skrifa hana aftur svo menn misskilji örugglega ekki neitt).
Gamli Santa Fe er með 5x4.5" sem er held ég 114.3 í þessu millimetrabulli. Þannig að ef Sævar fer rétt með gatadeilinguna á nýrri Súkkunum þá er það sama deilingin.
Re: Felgur Santa FE -> Grand Vitara
Posted: 28.nóv 2010, 21:41
frá Sævar Örn
ja það er rétt það er omögulegt að muna þetta tommukjaftædi en 5x139,7mm er réttmæli
5x114.3 suzuki á eingöngu við um grand vitara 2007+ sem er á sjálfstæðu að aftan og passar þar með á santa fe sé gert ráð fyrir að þurfa að miðjubora felgurnar.
Re: Felgur Santa FE -> Grand Vitara
Posted: 28.nóv 2010, 23:33
frá ellisnorra
Og ég á flott vetrardekk á 5x114.3 eða 5x4,5" felgum sem fást fyrir gott verð ef einhvern vantar.
Gaman að nefna það líka að 5,5" eru 139,7mm, þannig að súkkan er með 5x139,7mm og algenga 6 gata deilingin er 6x5,5".
Gaman af þessu :)
Re: Felgur Santa FE -> Grand Vitara
Posted: 29.nóv 2010, 01:33
frá thor_man
Takk kærlega fyrir þessar upplýsingar, þær hafa skýrt heilmikið. Þessi tengill á gatadeilingatöflu kom upp í leit, deili honum hér.
http://nude.is/gatadeiling/
Re: Felgur Santa FE -> Grand Vitara
Posted: 12.okt 2013, 22:57
frá askk
elliofur wrote:Og ég á flott vetrardekk á 5x114.3 eða 5x4,5" felgum sem fást fyrir gott verð ef einhvern vantar.
Gaman að nefna það líka að 5,5" eru 139,7mm, þannig að súkkan er með 5x139,7mm og algenga 6 gata deilingin er 6x5,5".
Gaman af þessu :)
mig vantar ál felgur undir vitara 2005 áttu svoleiðis 16 tommu