Síða 1 af 1

Dekkja og felgusúpa Til Sölu

Posted: 02.mar 2014, 21:00
frá Ragnar Karl
Dekkjalagerinn minn er til sölu....

4stk. 44x18,5x15 DC á góðum 5gata (stóra)16tommur á breidd felgum, tveir ventlar. Dekkin fúinn á hliðum en halda sæmilega lofti, munstur er gott. Verð 120.000

4stk. 44x18,5x15 DC á 18" breiðum felgum. Tvö dekkin halda lofti en hin tvö eru ónýt. Felgurnar eru 5 gata stóra, riðgaðar, þyrfti að sandblása. Ventill og krani. Verð 60.000

4stk. 38x14.5x15 DC á 14" breiðum 5gata felgum. Tvö dekkjana eru nothæf en tvö ónýt. Felgurnar þyrfti að mála. Ventill og krani. Verð 40.000

4stk. Fallegar 5gata pólíhúðaðar 14" felgur. Valsaður kantur og suðukantur. það eru ónýt dekk á felgunum (3stk.Trexus og 1stk AT) sem myndu fylgja þeim.
verðhugmynd 65.000 Flottar alvöru jeppafelgur.

upptalið í bili. kv Ragnar Karl S: 868 9065

Re: Dekkja og felgusúpa Til Sölu

Posted: 03.mar 2014, 09:25
frá Ragnar Karl
Þessi deiling passar á willis, suzuki, Bronco, 1500 dodge Ram, Roky og eitthvað fleirra.

Re: Dekkja og felgusúpa Til Sölu

Posted: 03.mar 2014, 09:38
frá Atttto
Áttu myndir af polyhududu felgunum og 38" ganginum

Atttto85@gmail.com

Kv . Atli

Re: Dekkja og felgusúpa Til Sölu

Posted: 03.mar 2014, 14:14
frá Ragnar Karl
Ef tölvuöld lofar þá áttu tvo nýja tölvupósta Atli.
Kv Ragnar Karl

Re: Dekkja og felgusúpa Til Sölu

Posted: 03.mar 2014, 17:32
frá Stebbi
Á að splæsa í nýjan gang undir súkkuna eða erum við að gefast upp í baráttuni við hversdagsleikan.

Re: Dekkja og felgusúpa Til Sölu

Posted: 04.mar 2014, 17:49
frá Ragnar Karl
Nee Stebbi. Sukki er i góðu yfirlæti skóglaus inní skúr. Drykkjahrútur er að fá nýja vetrarbomsur.. og svo vantar móður minni að nota þvottasnúrurnar sínar. En það eru nokkur dekk fyrir henni...

Re: Dekkja og felgusúpa Til Sölu

Posted: 07.mar 2014, 01:30
frá Ragnar Karl
Vantar ekki einhverjum dekk eða felgur??

Re: Dekkja og felgusúpa Til Sölu

Posted: 24.mar 2014, 18:09
frá Stebbi
Ragnar Karl wrote:Nee Stebbi. Sukki er i góðu yfirlæti skóglaus inní skúr. Drykkjahrútur er að fá nýja vetrarbomsur.. og svo vantar móður minni að nota þvottasnúrurnar sínar. En það eru nokkur dekk fyrir henni...


Isss hún mamma þín á bara að vera þakklát fyrir það að kofabyggðin er farin og villingarnir með. :)


frítt bump á toppinn.