Síða 1 af 1
SELT-TS notuð 46"- 2 gangar
Posted: 09.aug 2013, 09:02
frá Steinmar
Sælir
Hef til sölu tvo ganga af 46" MT dekkjum fyrir 16" felgur. Dekkin eru naglalaus. Annar gangurinn er minna slitinn en hinn og er þar af leiðandi ívið dýrari.
Betri gangurinn er verðlagður á 40.000 krónur per dekk, eða 160.000 fyrir ganginn.
Hinn dekkjagangurinn er verðlagður á 25.000 per dekk, eða 100.000 fyrir ganginn.
Upplýsingar eru veittar í síma 823-5255
Kv. Steinmar
P.S.
Er ekki búinn að læra að setja inn myndir :(
Re: TS notuð 46"- 2 gangar
Posted: 09.aug 2013, 09:29
frá ellisnorra
Sendu mér myndir á
elliofur@vesturland.is, ég hef bæði smá áhuga og svo skal ég setja myndir inn fyrir þig :)
Re: TS notuð 46"- 2 gangar
Posted: 09.aug 2013, 17:33
frá Steinmar
Sæll
Ég sendi þér myndir í fyrramálið, er ekki með myndirnar á heimatölvunni. Ég er annars búinn að lesa ansi skemmtilegt skítkast manna á milli um það hvernig á að setja myndir inn á síðuna og svei mér þá ef ég hef ekki bara fattað hvernig er best að fara að.... ekki það að mér líki sérstaklega að geyma myndir einhversstaðar í skýjunum og þess þá heldur á vef sem sem ég nota sárasjaldan.
En hvað um það, myndirnar sendi ég í fyrramálið.
Kv. Steinmar
Re: TS notuð 46"- 2 gangar
Posted: 09.aug 2013, 19:47
frá Magni
viewtopic.php?f=12&t=19266Þarft ekki að geyma þær á skýi :)
Re: TS notuð 46"- 2 gangar
Posted: 09.aug 2013, 20:33
frá Stebbi
Steinmar wrote:... ekki það að mér líki sérstaklega að geyma myndir einhversstaðar í skýjunum og þess þá heldur á vef sem sem ég nota sárasjaldan.
Góð lausn á því er að hætta að hanga á bland.is og vera meira á jeppaspjallinu, þar sem óþvegin karldýr stinga saman nefjum og skiptast á smurolíusögum og öðru merkilegu.
Re: TS notuð 46"- 2 gangar
Posted: 10.aug 2013, 08:53
frá Steinmar
Stebbi wrote:Steinmar wrote:... ekki það að mér líki sérstaklega að geyma myndir einhversstaðar í skýjunum og þess þá heldur á vef sem sem ég nota sárasjaldan.
Góð lausn á því er að hætta að hanga á bland.is og vera meira á jeppaspjallinu, þar sem óþvegin karldýr stinga saman nefjum og skiptast á smurolíusögum og öðru merkilegu.
Þegar ég nefni "vef sem ég nota sárasjaldan" er ég ekki að tala um jeppaspjall.is, þó ég sé nýstofnaður notandi hef ég verið virkur lesandi síðunnar frá upphafi. Vefur sem ég nota sárasjaldan er til dæmis Photobucket og svipaðir vefir.
En nú er ég búinn að lesa leiðbeiningar frá Magni81 og tel að ég geti fundið út úr þessu næst...
Re: TS notuð 46"- 2 gangar
Posted: 18.aug 2013, 21:23
frá Steinmar
Þetta ættu að vera umræddar myndir
Re: TS notuð 46"- 2 gangar
Posted: 28.aug 2013, 13:05
frá Steinmar
Betri gangurinn farinn. Sá lakari fæst núna á 80.000 krónur; hentar vel undir létta jeppa, bara að skera vel og keyra svo...
Verð með minna slitinn gang til sölu eftir ca. 3 vikur. Verðið á honum verður 35.000 per stykki= 140.000 gangurinn.
Kveðja
Steinmar