'98 Terrano diesel til sölu

User avatar

Höfundur þráðar
Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

'98 Terrano diesel til sölu

Postfrá Freyr » 01.feb 2012, 12:34

Til sölu er Nissan Terrano SE árgerð '98.
Akstur um 255.000 km.
Beinskiptur
Leðurinnrétting
Topplúga
7 manna
Eyðsla: rúmir 11 l. innanbæjar og e-ð minna út á landi, samt mjög lítill munur.
Dráttarbeisli.

Dekkin eru 31x10,5r15 BF-Goodrich Mud Terrain. Ég keypti þau ný undir bílinn síðasta sumar svo þau eru nær ókeyrð, þetta eru mjúk og góð dekk sem grípa mjög vel og eru hljóðlát. Áður en dekkin fóru á felgurnar voru þær grunnaðar með epoxy grunn og svo málaðar með tveggja þátta lakki. Þetta var pakki upp á hátt í 200.000 kr.
Bíllinn er örlítið hækkaður, það eru 3 cm klossar ofaná afturgormunum og hann er skrúfaður upp um 1-2 cm að framan.
Bíllinn er með manual driflokur að framan en ekki þetta auto drasl sem þeir koma með orginal.
Það er diskalás í afturhásingunni sem virkar mjög vel.

Ég hef skipt um eftirfarandi á s.l. 1,5 árum:
-Startari
-Klossar að framan
-Spindilkúlurnar
-Millibilsstöng
-Hjólalegur að framan
-Alla samsláttarpúða, breytti honum að aftan þannig að betri og ódýrari púðar passa beint í hann núna.
-Bremsurör á afturhásingu.
-Handbremsubarka vm. og hm.
-Framrúðu
-Eitthvað í afturbremsunum- man ekki hvort það voru borðarnir, gormasettið eða bæði.
-Hráolíulögnin frá tank var léleg, lagði nýja lögn undir miðjan bíl (var mjög góð þar fyrir framan).
-Hjólastilling síðasta haust.

Verð = 440.000

Freyr S: 661-2153 / freyr86@hotmail.com

Image

Image

Image

Image



User avatar

Höfundur þráðar
Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

Re: '98 Terrano diesel til sölu

Postfrá Freyr » 01.feb 2012, 14:37

Fremri hlutinn af pústinu er sennilega 2-3 ára gamall og aftari hlutinn + kúturinn er 1 árs gamalt.

User avatar

Höfundur þráðar
Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

Re: '98 Terrano diesel til sölu

Postfrá Freyr » 02.feb 2012, 22:02

Nær ónotuð dekk


Valdi B
Innlegg: 657
Skráður: 18.feb 2011, 13:16
Fullt nafn: þorvaldur björn matthíasson
Staðsetning: Suðurland

Re: '98 Terrano diesel til sölu

Postfrá Valdi B » 03.feb 2012, 15:12

gæti verið að ég hafi séð þennan bíl í vík í mýrdal í gærkvöldi ? fyrir utan sjoppuna ?
Ford Bronco 1974 (Z-444)
Ford Bronco 1968 33"(L-1029)
Toyota Hilux dc 38" 2000
Toyota LandCruizer 90 31" 2000

User avatar

Höfundur þráðar
Freyr
Innlegg: 1704
Skráður: 01.feb 2010, 10:52
Fullt nafn: Freyr Þórsson

Re: '98 Terrano diesel til sölu

Postfrá Freyr » 04.feb 2012, 20:43

Það gæti passað. Vinur minn fór á honum í gær með 46" dekk á kerru austurfyrir Vík.


Til baka á “Jeppar”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur