Síða 1 af 1

Hilux 38" fjallabíll

Posted: 03.jún 2020, 23:12
frá Þórarinn G
Til sölu Hilux fjallabíll. Bíllinn er V6 frá árinu 1991. Hús á palli og opið á milli, stólar afurí og veltigrind. Óskemmtilegt og óskammfeilið ryð hefur gert sig heimakomið í boddýið og því hefur bílnum verið lagt í bili. Bíllinn er á gormum, kominn með heila hásingu að framan og með 5,29:1 drifhlutföll. ARB loftlæsingar eru bæði að framan og aftan. Bíllinn getur selst hvort sem er án dekkja eða með negldum, óslitnum AT 405, 38“ dekkjum á 12“ breiðum felgum.

Uppl. í síma 8258077
Þórarinn