Óska eftir bíl að minnsta 38" á dúndur tilboði, hvað er í boði, er með staðgreiðslu í huga milli 500-800
Vill helst bíl með talstöð, GPS, læsingum, kastörum og fleira gúmmelaði
Hendið á mig tilboðum saevargislason@gmail.com eða hérna á spjallborðinu
Óska eftir minnst 38" bíl
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 7
- Skráður: 15.mar 2012, 23:23
- Fullt nafn: sævar gíslason
-
- Innlegg: 2134
- Skráður: 10.maí 2011, 10:51
- Fullt nafn: Vilhjálmur Reynisson
- Bíltegund: Toyota Hilux
- Staðsetning: Ittoqqortoormiit
Re: Óska eftir minnst 38" bíl
Þú getur kanski fengið eitthvað haugryðgað fyrir 500 - 800 þús. Sorry!
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 7
- Skráður: 15.mar 2012, 23:23
- Fullt nafn: sævar gíslason
Re: Óska eftir minnst 38" bíl
Ef þú ert ekki með bíl þá vil ég vinsamlegast biðja þig um að halda þínum skoðunum útaf fyrir þig. Þetta er algjörlega óþolandi að menn geta ekki auglýst fyrir mönnum sem hafa ekkert til málana að leggja nema rugl og einhverjar upplýsingar sem ég var ekki að biðja um.
Þú hefur verið reportaður til stjórnenda
Þú hefur verið reportaður til stjórnenda
-
- Stjórnandi
- Innlegg: 1391
- Skráður: 30.jan 2010, 22:43
- Fullt nafn: Árni Björnsson
- Bíltegund: Land Rover
- Staðsetning: Akureyri
- Hafa samband:
Re: Óska eftir minnst 38" bíl
Haha, gaman að þessu.
Villi er kannski hressilega hreinskilinn þarna en hefur nokkuð rétt fyrir sér.
Málið búið, ekkert drama. Gangi þér vel að finna draumabílinn!
Villi er kannski hressilega hreinskilinn þarna en hefur nokkuð rétt fyrir sér.
Málið búið, ekkert drama. Gangi þér vel að finna draumabílinn!
Land Rover Defender 130 38"
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 7
- Skráður: 15.mar 2012, 23:23
- Fullt nafn: sævar gíslason
Re: Óska eftir minnst 38" bíl
Sæll,
Getur þú sent mér frekari upplýsingar hvað fylgir, hvað þarf að laga og stgr verð?
Kv . Sævar
-
- Innlegg: 2625
- Skráður: 29.mar 2012, 08:39
- Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Tacoma
Re: Óska eftir minnst 38" bíl
saevargislason wrote:
Sæll,
Getur þú sent mér frekari upplýsingar hvað fylgir, hvað þarf að laga og stgr verð?
Kv . Sævar
Ég á ekkert í þessum jeppa, var bara að skoða hann fyrir 2-3 vikum. Það eru þó nokkrar ryðblöðrur sem þyrfti að laga, hann er á 44-tommu dekkjum en skráður fyrir 38-tommu, þannig að brettakanntarnir eru of mjóir fyrir skoðun. Sölumaðurinn sagði líka að það vantaði einn stýrisenda. Þegar ég skreið undir hann sá ég að grindin var í nokkuð góðu lagi miðað við aldur og mér sýndist að upphækkunin væri nokkuð vandlega gerð.
Sjálfur þori ég ekki að taka áhættuna með 3ja lítra Patrol vélina þar sem ég er ekki með viðgerðaraðstöðu.
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 24 gestir