Til sölu Toyota Land Cruiser 60, 1987 módel SELDUR!
Posted: 13.jún 2017, 20:23
Til sölu Toyota Land Cruiser 60, 1987 módel, dísel og ekki með túrbínu. Keyrður sirka 295000 km (samkvæmt mæli). Skemmtilegur bíll sem þarfnast viðhalds. Nýlega smurður og nýskoðaður, er með skoðun til 2019 og augljóslega fornbíll. Mikið hækkaður, er núna á 35“ sumardekkjum, hef verið með hann á 38“ nagladekkjum á veturna (mudder í góðu standi, látið vita ef áhugi er fyrir þeim). Eitthvað ryð. Nýr alternator, nýuppteknir spíssar, lagfærðir og settar nýjar dísur. Nýr stýrisendi, nýjar fóðringar í aftari upphengju á vinstri föður að framan. Ný glóðarkerti, ný ventlalokspakkning, nýr hjöruliðskross í aftara drifskafti, nýleg viftureim. Skipti um hjólarlegur í vinstra framhjóli fyrir tæpu ári og pakkdósir að framan. Tæplega tveggja ára gamlir rafgeymar í góðu standi. Vélin er líklegast orðin frekar óþétt og það lekur framan úr henni (ný pakkdós fylgir bílnum). Það er líka smit og einhver leki þar sem millikassi og drif tengjast (ný pakkdós fylgir bílnum). Lætur illa þegar á að gangsetja hann kaldan en rýkur strax í gang heitur og drepur aldrei á sér þegar hann er kominn af stað. Algjör jálkur og frábær í ferðalög uppá hálendinu, eyðir litlu í þeim aðstæðum. Verð að láta hann frá mér vegna tíma- og aðstöðuleysis. Er staðsettur í Mývatnssveit í sumar.
Verð 300.000 kr
netfang fyrir meiri upplýsingar lagfota@gmail.com og sími 6636167
Þórhildur
Verð 300.000 kr
netfang fyrir meiri upplýsingar lagfota@gmail.com og sími 6636167
Þórhildur