38" LC 90 2000 árg dísil
38" LC 90 2000 árg dísil
Til sölu 38 tommu breyttur Toyota LC 90 2000 árg dísil, Anniversary útgáfa. Hann er ekinn 248 þús, beinskiptur, smurbók frá upphafi. Það er aukatankur í honum kastaragrind að framan spottakassi á hlera. Hann er á 4:88 hlutföllum og lítur bara vel út miðað við aldur. Það sem er að hrjá hann er það að einhvern tíman hefur grindin í honum verið tektílu og svo hefur komist vatn og drulla á bakvið tektílinn og ná að grassersa þar á bakvið og innra byrði á henni farþegamegin neðan til á ca 30 - 40 cm kafla sem þarf að skipta um, ætti ekki að vera mikið mál fyrir laghentan mann. Hann er á AT dekkjum og ca 7mm eftir af munstri. Ásett verð á svona bíl í lagi er frá 1690 þús og um og yfir 2 millur. Ég vil að menn komi og skoði hjá mér bílinn prófi og geri svo tilboð ef að mönnum lýst á. Get sent myndir í tölvupósti. Ef einhver er með frekari fyrirspurnir vinsamlegast sendið einkaskilaboð.
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur