TS: MMC Pajero GLS '99 35" -SELDUR-


Höfundur þráðar
jon mar
Innlegg: 18
Skráður: 10.sep 2014, 20:25
Fullt nafn: Jón Mar Jónsson
Bíltegund: '99 Pajero
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

TS: MMC Pajero GLS '99 35" -SELDUR-

Postfrá jon mar » 18.mar 2017, 17:37

- SELDUR -


Til sölu þessi gæðingur sem hefur þjónað mér og mínum dyggilega síðustu rúmlega 3 árin.

MMC Pajero GLS '99
3.0L V6 Motor
Akstur 233.500km
Sjálfskiptur
7 Manna
Leður
Topplúga
Rafmagn í þessu helsta.
Xenon aðalljós. 4300k
Smurbók.
Original loftlæstur að aftan.
Nýsmurður og bifreiðagjöld greidd.

33" breyttur upphaflega, bara búið að hækka fyrir 35".
Skrúfaður upp að framan til að hækka.
Y60 Patrol Afturgormar til að hækka að aftan.
Hraðamælabreytir frá Samrás
Nýleg 35x13,5R15 Toyo Open Country MT, míkróskorin og nelgd(Keypt Feb 2016, vetrardekk) Kosta rúmlega 330þ.
15x12" Stálflegur með krana og slöngutengjum ásamt venjulegum loftventlum.
Fylgja vel slitin 32" dekk á 15x10 álfelgum og gangur af vel slitnum 33" BFG AT. Hefur verið notað sem sumardekk.

Viðhald:
- Skipt um bensíndælu og eldsneytissíu haustið 2015
-Skipt um diska og klossa að aftan og dælur teknar upp 2015, einnig nýjir klossar að framan á sama tíma.
- Skipt um tímareim, vatnsdælu, strekkjara, hjól og pakkdósir f. knastása + ventlalokspakkningar í 203þ km, einnig skipt um frostlög - Júní 2015
- Soðið lítilega í grind í grind vorið 2016, skipt um alla spindla að framan á sama tíma. Einnig skipt i pakkdósir og hjólalegu vinstra megin að aftan + olía á afturdrif.
- Innri öxulhosur beggja vegna framan núna í Mars 2017

Bíll í almennt góðu standi og til í lang flest. Duglegur í ófærð og fer alveg hreint príðalega vel með mann í fjaðrandi framsætunum. Hann vinnur engar fegurðarsamkeppnir en ber aldurinn ágætlega og er ekki þjakaður af ryði svo það taki því að tala um. Eyðir mjög hóflega miðað við tröllasögur af V6 bílum. 10.5-11.5 á langkreyslu á 33" en fer uppí 13.5 á langkeyrslu á þessum dekkjum.

Plöstin í kastaragötin á framstuðara eru til, einnig litlu brettakanntahornin á stuðarann. Þetta fagra tengdamömmubox getur fylgt með ef óskað er. Einnig eitt og annað jeppatengt sem getur farið með ef vel semst.

Verðhugmynd er 750þ á þessum 35" dekkjum. Fer á góðu verði gegn staðgreiðslu.
Skoða einnig að selja hann án þessara dekkja, skoða eingöngu skipti á ódýrara og auðseljanlegu í lagi.

Upplýsingar í skilaboðum hér eða í síma 693-9796 (Jón)

Image
Image
Image
Image
Image
Image


Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

MMC Pajero 35" '99
Ford Bronco '66

Til baka á “Jeppar”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 9 gestir