Seldur.....Grand Cherokee til sölu
Posted: 04.nóv 2016, 08:19
Til sölu 2000 árg. af Grand Cherokee Limited V8 4.7l afa og langafabíll. Bíll í frábæru standi. Ekinn 165 þús km og alltaf mjög yfirvegað. Bíllinn hefur verið í toppviðhaldi og kom nýlega úr 260 þús króna viðgerð (Jeppasmiðjan Ljónsstöðum) þar sem farið var yfir allt í bremsum, legum/pakkdósum og fóðringum í undirvagni. Það tístir ekki í tækinu á keyrslu. Eyðir 11-12 á langkeyrslu í krúsinu á 90 km hraða. Lakkið bara mjög gott miðað við 16 ára gamlan bíl. Dekkin eru lítið slitin heilsársdekk. Það eru hrikalega góð kaup í þessum bíl fyrir þá sem vilja skemmtilegan jeppa. Ásett verð kr. 600.000. Áhugasamir hafi samband joistefans@gmail.com eða í síma 864-1235. Bíllinn er á Selfossi.