Síða 1 af 1

Nissan Terrano 2. 2000 árgerð 2.7tdi 32"

Posted: 12.maí 2016, 13:57
frá StefánDal
Nissan Terrano 2
Árgerð: 2000
Akstur: 211.000
Vélbúnaður: 2.7TDI sjálfskiptur 4x4.
Dekk: 32" ágætis túttur.
Annað: Topplúga, aircondition, sjö manna.

Fínasti bíll sem á mikið eftir. Lítið ryðgaður og hvergi göt.
Sjálfskiptingin í honum bilaði í vetur. Fór að detta út í akstri. Þá dugaði til að drepa á og bíða í smá stund. Hún var skoluð og skipt um vökva þrisvar. Hefur virkað fínt síðan. Aðrir gallar eru sprunga í framrúðu og almenn sjúskheit. Já og lélegir rafgeymar.
Ég keypti um daginn varahlutabíl af sömu árgerð. Í honum er góð vél og sjálfskipting í fínu lagi. Planið var að nota úr honum skiptinguna en svo bara virkar hin. Hann allavegana fylgir með. Hægt að gera sér ágætis aur úr honum

Get ekki tekið neinum skiptum þó ég glaður vildi. Er kominn með annan bíl og frúin bannar mér að eignast meira drasl...

Verð: 370.000. Ekki heilagt.

Stefán Dal. 690-0628

Image