Síða 1 af 1

1994 Jeep Grand Cherokee 4WD V8-318 5.2L

Posted: 20.apr 2016, 20:02
frá Hjorturthor
Til sölu gott eintak af Jeep, keyrir og virkar vel. Afhendist skoðaður.

Nýbúið að skipta um eftirfarandi:
Bremsudiska, klossa, dælur og klafana (hjólnafið) framan og aftan.
Handbremsubúnaður, allt nýtt.
Hjólalegur framan og aftan, öxulpakkdósir að aftan (Timken að framan og National að aftan).
Nýjar olíur á mótor ásamt síu, drifum og millikassa. Á eftir sjálfskiptingu.
Nýjar spindilkúlur efri og neðri b/m (MOOG).
Nýir stýrisendar allir og skipt um þéttisett í stýrisvél, hjólastilltur.
Ný kúpling í millikassa (viscous coupling), ekki uppgerð!!
Ný vatnsdæla, viftukúpling, viftureim og vatnslás.

Ágætis Pioneer stereo og ágætis bíll eftir að maður tók svona hressilega til í honum.

Hjólbarðar duga sumarið en þyrfti að fjárfesta í nýjum fyrir næsta vetur.

Endilega bjóðið, er ekki að biðja um mikið fyrir hann miðað við þetta TLC sem ég hef veitt honum en tek öllum boðum :)

Re: 1994 Jeep Grand Cherokee 4WD V8-318 5.2L

Posted: 20.apr 2016, 20:08
frá Hjorturthor
Gleymi að setja inn símann en hann er 694-6026 :)

Re: 1994 Jeep Grand Cherokee 4WD V8-318 5.2L

Posted: 24.apr 2016, 10:34
frá solemio
Hvað ertu að tala um fyrir hann??

Re: 1994 Jeep Grand Cherokee 4WD V8-318 5.2L

Posted: 27.apr 2016, 18:02
frá Hjorturthor
Ég er að biðja um 350 þús fyrir hann