Húsbíll! Einn sá allra flottasti til sölu! Hlaðinn búnaði!  SELDUR!


Höfundur þráðar
nomis97
Innlegg: 33
Skráður: 06.júl 2010, 01:46
Fullt nafn: Símon Sigurðsson

Húsbíll! Einn sá allra flottasti til sölu! Hlaðinn búnaði!  SELDUR!

Postfrá nomis97 » 10.mar 2015, 08:07

NÝTT VERÐ: 5.490.000 KR.

Ford Econoline 350 XLT Club Wagon
Árgerð: 2002
Akstur: 270.000 km.
Vél: 5.4 Triton V8, Bensín og sjálfskipting með overdrive. Afturdrifinn.


Image

Lúxus húsbíll til sölu, bíllinn var smíðaður á árunum 2005-2008 og var engu til sparað. Eingöngu notaðir hágæðahlutir og efni í bílinn. Áður en byrjað var að breyta bílnum í húsbíl í 2005 var hann mikið endurnýjaður s.s. nýjir spíssar og háspennukefli, upptekin stýrismaskína ofl. Innrarými er einstaklega vel skipulagt og glæsilegt í alla staði. Sérsmíðaðar innréttingar og allur klæddur á afar hlýlegan máta að innan. Slönguskinnsdúkur á gólfi. Mikið og gott skápapláss og allt skipulag með besta móti. U-bekkur afturí sem breytist í rúm fyrir 2- 3 fullorðna eða 2 fullorðna og 2 börn. Upphækkaður trefjaplast toppur með opnanlegri topplúgu og stórum skápum. Auka rafkerfi er til staðar fyrir neyslu með stjórnborði, auka rafgeymi og fleira. Hægt er að tengja bílinn við 220v landstraum og við það hlaðast báðir rafgeymar (hleðslustöð og 2x 150 AMP rafgeymar). Flott LED lýsing, dökkar rúður og gardínur. Captain stólar frammí, bílstjórastóll með rafstillingum og farþega stóll á snúningsfæti. Að geta snúið farþegastólnum gefur töluvert meira pláss og betri umgengni. Það fylgja með gardínur sem eru settar upp í framrúðu og fremri hliðarrúður á einfaldan og fljótlegan hátt.

Image

Bíllinn er 33“ breyttur og stendur á Dick Cepek dekkjum og flottum álfelgum. Stigbretti og brettakantar. 100% ARB loftlæsing á afturhásingu og hjálparloftpúðar á milli fjaðra sem stjórnast innan úr bíl. Prófíltengi fyrir dráttarbeisli að framan og aftan. Bíllinn hefur verið notaður eingöngu á sumrin síðustu 5-8 ár og verið geymdur inni á veturna í upphituðu húsnæði. Reglulega bónaður og topp viðhald, sannkallaður dekurbíll. Það hafa verið farnar nokkrar ferðir inn á hálendi á sumrin í veiðivötn og þar um kring. Aldrei lent í neinu veseni með að komast þangað sem ætlunin var að komast og það munar um loftlæsinguna. Bíllinn er búinn stórri markísu og Það fylgir bílnum stórt nánast ónotað fortjald sem festist á markísuna. Einnig fylgir skjóltjald sem smellist neðan á bílinn til að halda íslenska útileguveðrinu í skefjum.

Image

Bíllinn er hlaðinn aukabúnaði af bestu gerð. Electrolux gas ísskápur, vaskur með heitu og köldu vatni (vatnshitari), helluborð, gasmiðstöð með thermostat, Flatskjár + DVD og sjónvarpsloftnet, Gasskynjari, 100 L ryðfrír vatnstankur ofl. Ofl.

Image

Aftan á bílnum er stór geymslukassi þar sem allur útilegubúnaður, grillið og veiðidótið kemst auðveldlega fyrir, Lokið á kassanum nýtist sem aðgerðarborð til að verka fisk eða hvað sem fólki dettur í hug. 2 Gaskútar eru í kassanum og gengið frá öllum tengingum með hraðtengjum. Fyrsta flokks frágangur. Hægt er að taka kassann af bílnum á fljótlegan hátt, hraðtengingar á bæði rafmagni og gasi. Einnig er hægt að renna kassanum aftur um hálfan meter til að þrífa á bakvið eða opna afturhurðar. Á kassanum eru flott LED ljós og LED bakkljós. Bíllinn er 100% ryðlaus.

Image

Bíllinn er búinn 4 kösturum að framan á lítilli krómgrind, 2 stk. Hella Luminator 1000m og 2 stk. Fiskiaugu. Custom fram og afturljós og mikið af flottum díóðuljósum að framan að ofanverðu og í stigbrettum. Vindhlífar á rúður í framhurðum og húddhlíf.

Image

Þetta er alvöru húsbíll af gamla skólanum. Skráður 8 manna með belti fyrir alla. Einstaklega vel heppnaður bíll í alla staði. Keyrður að meðaltali 2000 km. Á ári síðan 2005

Verð: 5.490.000 kr. Ekkert áhvílandi, Selst skoðaður og klár í ferðalög.

Ef þú hefur áhuga á að skoða eða prufukeyra vinsamlegast hafið samband við Sigurð í síma: 892-9027 eða sendið tölvupóst á nomis97@gmail.com

Takk fyrir að skoða auglýsinguna okkar 

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image
Síðast breytt af nomis97 þann 31.mar 2015, 06:38, breytt 3 sinnum samtals.




rauðhaus
Innlegg: 56
Skráður: 11.des 2010, 12:11
Fullt nafn: Jóhann Fannar Gunnlaugsson

Re: Húsbíll! Einn sá allra flottasti til sölu! Hlaðinn búnaði!

Postfrá rauðhaus » 10.mar 2015, 09:40

Ég myndi frekar losa mig við íbúðina og búa í bílnum :) Annars gríðarlega vel heppnaður bíll, gangi þér vel með söluna!


Höfundur þráðar
nomis97
Innlegg: 33
Skráður: 06.júl 2010, 01:46
Fullt nafn: Símon Sigurðsson

Re: Húsbíll! Einn sá allra flottasti til sölu! Hlaðinn búnaði!

Postfrá nomis97 » 03.maí 2015, 20:47

Já þessi heppnaðist vel og tók sinn tíma. Takk fyrir það kærlega :)


Höfundur þráðar
nomis97
Innlegg: 33
Skráður: 06.júl 2010, 01:46
Fullt nafn: Símon Sigurðsson

Re: Húsbíll! Einn sá allra flottasti til sölu! Hlaðinn búnaði!

Postfrá nomis97 » 26.júl 2015, 18:34

upp með þennan


Höfundur þráðar
nomis97
Innlegg: 33
Skráður: 06.júl 2010, 01:46
Fullt nafn: Símon Sigurðsson

Re: Húsbíll! Einn sá allra flottasti til sölu! Hlaðinn búnaði!

Postfrá nomis97 » 04.apr 2016, 09:14

Nú er sumarið að koma! Þessi fæst á 4.500.000 staðgreitt. Einn sá allra flottasti. Hafið samband í síma: 892-9027, Sigurður eða á meili: nomis97gmail.com

Bíllinn er í geymslu til 7. maí. Ekkert mál að fá að skoða eftir samkomulagi þangað til...


maggitor
Innlegg: 2
Skráður: 09.apr 2016, 18:36
Fullt nafn: magnús indriðason

Re: Húsbíll! Einn sá allra flottasti til sölu! Hlaðinn búnaði!

Postfrá maggitor » 09.apr 2016, 18:40

nomis97 wrote:Nú er sumarið að koma! Þessi fæst á 4.500.000 staðgreitt. Einn sá allra flottasti. Hafið samband í síma: 892-9027, Sigurður eða á meili: nomis97gmail.com

Bíllinn er í geymslu til 7. maí. Ekkert mál að fá að skoða eftir samkomulagi þangað til...


maggitor
Innlegg: 2
Skráður: 09.apr 2016, 18:36
Fullt nafn: magnús indriðason

Re: Húsbíll! Einn sá allra flottasti til sölu! Hlaðinn búnaði!

Postfrá maggitor » 09.apr 2016, 18:43

Sæll, ef bíllinn er eins góður og þú segir ,er ég tilbúinn að greiða 3.800.000 á borðið. Kv.M


Höfundur þráðar
nomis97
Innlegg: 33
Skráður: 06.júl 2010, 01:46
Fullt nafn: Símon Sigurðsson

Re: Húsbíll! Einn sá allra flottasti til sölu! Hlaðinn búnaði!

Postfrá nomis97 » 07.maí 2016, 22:58

pm sent Magnús :)


Höfundur þráðar
nomis97
Innlegg: 33
Skráður: 06.júl 2010, 01:46
Fullt nafn: Símon Sigurðsson

Re: Húsbíll! Einn sá allra flottasti til sölu! Hlaðinn búnaði!

Postfrá nomis97 » 08.júl 2016, 18:51

SELDUR! MÁ EYÐA!


Til baka á “Jeppar”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 10 gestir