46" Suburban ´85  SELDUR!


Höfundur þráðar
StebbiHö
Innlegg: 157
Skráður: 01.feb 2010, 01:11
Fullt nafn: Stefán Höskuldsson
Staðsetning: Akureyri

46" Suburban ´85  SELDUR!

Postfrá StebbiHö » 10.feb 2015, 23:50

Jæja, þar sem ég sé ekki fram á að nota bílinn að neinu ráði á næstu árum er hann hugsanlega falur. Verður þó með hrikalegum söknuði sem hann yrði látinn fara. En jæja, hvað um það, gripurinn er sem sagt þessi.

Chevy Suburban árgerð 1985.
Afturhásing er 14 semi floting með ARB loftlás og 5,13 hlufalli
Framhásing er 10 bolta, 8,5" drif GM með ARB og 5,13 hlutfalli.
Vélin er 406 SBC með fullt af dóti í, á að skila slatta af hö og togi, á henni er nýr Quatrajet blöndungur með rafmagnsinsogi.
Í bílnum eru 2 gírkassar, fremri kassinn er SM 465 með extra lágum gír, aftari kassinn er NP 540C kassi úr GMC vörubíl, gamall og sterkur, 5 gíra með extra lágum gír. Aftan á þessu er 205 millikassi með 1:2 í lága. Mér reiknast til að niðurgírunin sé 1:497 sem er ansi lágt!
HAnn er á loftpúðum að framan og aftan með 4link á báðum stöðum.
Hann er á 46"x16" dekkjum og 16" breyðum felgum, það er annar gangur sem fylgir með sem er lélegur en nothæfur sem sumargangur ef vill.
Aukarafkerfi er í honum sem ég setti í ásamt 2 rafgeymum. 4 kastarar að framan, vinnuljós á hlið og aftan.
Bíllinn var sprautaður fyrir 3 árum síðan og þá tekinn allur í parta og lagað það litla ryð sem í honum var, boddy á að vera í ágætis lagi.
Það er búið að fjarlæga bekkinn sem var afturí honum og þar eru núna 2 stólar.
Það er í honum VHF og MAgellan GPS.
Piooner græjur með 4 hátölurum.

Þetta er bíll sem ég er búinn að eiga í næstum 20 ár og fékk óbreyttann í hendur á sínum tíma. Er hrikalega ánægður með hann en auðvitað er ég ekki hlutlaus, hehe. Það er klárt að það þarf að gera eitthvað í honum, er það ekki alltaf með svona bíla, en hann virkar og drífur.
Hef ekki notað hann í vetur né síðasta vetur þar sem ég er ekki búsettur á landinu og því er hann falur, vill frekar að einhver taki við honum en að h ann brabbist niður og eyðileggist.
Set in tengil á annann þráð þar sem fleira er tiltekið um bílinn og eitthvað af myndum.

Ásett verð er 1,2 og þar sem mig vantar bíl þá er ég til í að skoða eitthvað í uppítökum.


StebbiHö
894 9997




Baddiblái
Innlegg: 19
Skráður: 31.jan 2010, 23:58
Fullt nafn: Baldvin Jónsson

Re: 46" Suburban ´85

Postfrá Baddiblái » 12.feb 2015, 18:19

Sæll, er bíllinn á Akureyri?
Væri gaman að skoða græjuna við tækifæri
----------------------
Kveðja, Baddi c")


ragnarb
Innlegg: 25
Skráður: 22.nóv 2012, 19:42
Fullt nafn: Ragnar B Bjarnarson
Bíltegund: dodge

Re: 46" Suburban ´85

Postfrá ragnarb » 12.feb 2015, 21:48

geturðu sent myndir og nánari uppl á Raggaflutninga@gmail.com

kv RAGNAR b


Höfundur þráðar
StebbiHö
Innlegg: 157
Skráður: 01.feb 2010, 01:11
Fullt nafn: Stefán Höskuldsson
Staðsetning: Akureyri

Re: 46" Suburban ´85

Postfrá StebbiHö » 13.feb 2015, 00:06

Bíllinn er í Hafnarfirði eins og er, stendur annars allajafna í Kópavogi, fluttur frá Ak sem sakir standa. Er ekki með mykið af myndum af honum í þessari tölvu, reyndar á ég svo sem ekki mikið af myndum af honum en hér er linkur á umræðu um hann hér á spjallinu,

viewtopic.php?f=9&t=139

Kv Stefán


jonnigunn92
Innlegg: 10
Skráður: 18.jan 2014, 23:02
Fullt nafn: Jón Gunnar Jóhannsson

Re: 46" Suburban ´85

Postfrá jonnigunn92 » 19.mar 2015, 09:32

Sæll er þetta fast verð á honum


odinningi
Innlegg: 11
Skráður: 26.aug 2015, 17:55
Fullt nafn: Óðinn ingi

Re: 46" Suburban ´85

Postfrá odinningi » 04.sep 2015, 22:13

Enn til sölu?


Höfundur þráðar
StebbiHö
Innlegg: 157
Skráður: 01.feb 2010, 01:11
Fullt nafn: Stefán Höskuldsson
Staðsetning: Akureyri

Re: 46" Suburban ´85

Postfrá StebbiHö » 04.okt 2015, 19:48

Þessi er því miður seldur, fór slatti af tárum þegar ég sá á eftir honum, en koma bílar koma ráð.


Höfundur þráðar
StebbiHö
Innlegg: 157
Skráður: 01.feb 2010, 01:11
Fullt nafn: Stefán Höskuldsson
Staðsetning: Akureyri

Re: 46" Suburban ´85 SELDUR!!!

Postfrá StebbiHö » 04.okt 2015, 19:49

Já seldur er hann.


Til baka á “Jeppar”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 24 gestir