Síða 1 af 1

Til sölu Trooper

Posted: 08.des 2014, 13:14
frá haukur78
Er með Isuzu Trooper "99 bsk. ekinn 325þ. Er skoðaður fram í sept. á næsta ári. Bíllinn er í góðu lagi s.s hjólabúnaður, kúpling, fínn að innan. Missti hluta til smurþrýsting í vikunni út af pickup röri og túrbínan fór í skrall en búið að setja aðra góða túrbínu í og skipta um pickup rörið, Einnig var gerð lausleg athugun á vél og virðist allt vera ok þar. Ný olía og síur á vél. Hann stendur á mjög góðum Bf Goodrich A/T microskornum 33" dekkjum. Munstur er ca 9-10mm. Einnig eru glænýjir rafgeymar í honum.Nýbúið að fara í olíutank og laga rör hjá gretti vatnskassaþjónustu. Það sem má finna að honum er: Ryðdoppur í topp rétt aftan við rúðu, ryð í stóru skotthurð sem er nú bara staðalbúnaður, leti í rafmótorum í skotti og annari aftur hurð, þarf að lagfæra rúðusleða í fremri hurð vinstra megin og lakk er passlega sjúskað. Var skipt um tímareim í 270þ. Einnig er búið að fara í spíssa og rail eitthvað olíurör tengt því.
Ásett verð er 490þ. en er tilbúinn að láta hann á 450þ.

Haukur
S:6939493

Re: Til sölu bilaður Trooper

Posted: 09.des 2014, 22:52
frá dariuszm
100pus i dag????

Re: Til sölu Trooper

Posted: 10.des 2014, 10:55
frá haukur78
Nei! það er ekki einu sinni fyrir dekkjunum.

Re: Til sölu Trooper

Posted: 03.jan 2015, 21:02
frá siggigud
er þessi enn til ?