Síða 1 af 1

Vil slétt skipti á Diesel BMW og jeppa

Posted: 21.nóv 2014, 21:26
frá Severus Snape
Er með BMW 320 Diesel station árg. 2004. ekinn 262 þús. nýskoðaður, í topplagi, tölvukubbur og hátt í 200 hö. eyðir samt engu, 5 l á langkeyrslu. Sumardekk á álfelgum, nagladekk á stálfelgum. allt þetta venjulega, rafmangsrúður, air condition og allt það. Fínn bíll og ferlega gaman að keyra hann. Fyrir þá sem langar að berja hann augum er hægt að skoða hann hér: http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1

Mig langar í slétt skipti á BMW-inum og jeppa. Hann þarf svona um það bil að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1) Vera Diesel
2) vera yngri en 2000 módel
3) Vera tiltölulega óryðgaður
4) Vera svona nokkurn veginn í lagi
5) Vera á 35" dekkjum eða minni.
6) vera með vélarafl svona um 150 hestöflin að lágmarki

Að öðru leyti er ég bara ferlega opinn fyrir hverju sem er og hvaða tegund sem er.

Re: Vil slétt skipti á Diesel BMW og jeppa

Posted: 21.nóv 2014, 22:52
frá Gummi85
ma bjoða þer GMC pikka 6,5 turbo 96 i slettum skiftum

Re: Vil slétt skipti á Diesel BMW og jeppa

Posted: 27.nóv 2014, 14:36
frá Severus Snape
Nja, hann er eiginlega einu númeri of stór

Re: Vil slétt skipti á Diesel BMW og jeppa

Posted: 08.des 2014, 14:15
frá notandi29
Viltu 35" trooper?

Re: Vil slétt skipti á Diesel BMW og jeppa

Posted: 10.des 2014, 21:45
frá Brjotur
Hæ ég er með einn sem uppfyllir um það bil allt sem þú nefnir :) + leður og lúgu
Mitsubishi Montero 2003 v6 3.8 bensín það eina sem er u.þ.b. :)
er sennilega meira en 150 hö :)
ekkert ryð, er í lagi og skoðaður
og er á venjulegum dekkjum
er til í skifti
6624228
Helgi

Re: Vil slétt skipti á Diesel BMW og jeppa

Posted: 03.jan 2015, 13:33
frá Severus Snape
Held ekki, takk samt fyrir fallegt tilboð en ég þarf að nota jeppan í drátt og vil ekki eitthvað sem fer í 30 lítrana.