Síða 1 af 1

Vantar 2.8 Pajero

Posted: 08.nóv 2014, 07:36
frá Aparass
Sælir strákar og stelpur.
Ég er að leita mér að vélarvana 2.8 Pajero MK2
Einu kröfurnar hjá mér eru að boddy og kram sé gott.
Ég get alveg horft framhjá einhverjum götum í grindum en gott ef maður horfir ekki beinlínis í gegnum hana.
Langar helst í beinskiptann en skoða alveg sjálfskiptann ef bíllinn er góður.
Endilega skjótið á mig tilboðum ef þið hafið svona eða hringja í mig í síma 616 8631.
Kv.

Re: Vantar 2.8 Pajero

Posted: 10.nóv 2014, 13:51
frá gýgjarhóll72
Sæll
Smá pæling, ég er að leita mér að krami sem er í lagi, skiptingu og vél úr V6 með öllu rafkerfinu, ca árgerð 95-99...
Ef þetta er eitthvað sem gegnur saman þá er síminn hjá mér 8629061
kveðja
Ingvar.

Re: Vantar 2.8 Pajero

Posted: 27.nóv 2014, 17:50
frá Hrannifox
Aparass wrote:Sælir strákar og stelpur.
Ég er að leita mér að vélarvana 2.8 Pajero MK2
Einu kröfurnar hjá mér eru að boddy og kram sé gott.
Ég get alveg horft framhjá einhverjum götum í grindum en gott ef maður horfir ekki beinlínis í gegnum hana.
Langar helst í beinskiptann en skoða alveg sjálfskiptann ef bíllinn er góður.
Endilega skjótið á mig tilboðum ef þið hafið svona eða hringja í mig í síma 616 8631.
Kv.

Sæll á 2.8 bsk bíl sem er sennilega með sprungnu heddi en allt annað er tipptopp fékk eina athugasemd i skoðun um daginn og var það numersljos, hann er ekinn 288.000
33-35" breyttur, 99 faceliftbíll

Er bara að athuga hvað menn tíma að borga fyrir svoleiðis bíl ?

Re: Vantar 2.8 Pajero

Posted: 27.nóv 2014, 21:54
frá Aparass
Veit ekki með gangverðið á svoleiðis en ég er kominn með bíl, 98 módel, 33-35" breyttur og á fínum 33" bfgoodrich, fékk hann á 80 þús. þvi hann var með sprungnu heddi.
Farinn að keyra og búinn að boddylyfta og kominn með 38" dekkin undir hann.
Er samt með litlu kantana á honum og ætla að halda mig við þá.