Musso 1998 diesel til sölu fyrir lítið fé
Posted: 07.aug 2014, 01:18
Minn góði Mussó er nú falur fyrir sanngjarnt verð. Hann þarfnast lítils háttar lagfæringa til að komast í gegn um skoðun en margt hefur verið endurnýjað. Það er heilmikið eftir í þessum bíl. Varahlutir eru mjög ódýrir í Bílabúð Benna. Fínn fyrir laghenta menn og konur. Hann er árgerð 1998, ekinn ca 220 þús. Fimm cyl. diesel en túrbínan er biluð. Þarf að skipta um hjólalegu að aftan held ég og loka gatinu fyrir EGR ventilinn á pústgreininni. Nýr vetrargangur á felgum getur fylgt með en það hækkar prísinn verulega. Annars fæst hann á lítið. Bíllinn er á Hornafirði.
Upplýsingar á siggi@marason.is
Upplýsingar á siggi@marason.is