Síða 1 af 1

Ódýr 35 tommu breyttur Terrano

Posted: 12.júl 2014, 11:04
frá Dos
Þarf að losna við Nissan Terrano 2,7 diesel ekinn 270.000. Hann er 35 tommu breyttur og á hálfslitnum 35 tommu dekkjum. Bíllinn er ökuhæfur og á númerum en kominn fram yfir á skoðun. Það eru nokkrir hlutir sem þarf að laga í honum fyrir skoðun. Bíllinn lítur þokkalega út og voru til dæmis stuðarar og brettakantar sprautaðir í fyrra. Sjálfskiptur. Einnig getur fylgt með honum annar eins bíll sem búið er að rífa úr en margt enn i honum eins og vél og gírkassi. Þessi bíll hefur reynst vel og er gott verkefni fyrir einhvern handlaginn sem getur komið honum í lag. Ætla að setja á þetta allt saman 120.000 því ég þarf að losa pláss. Upplýsingar eru í dosverk@simnet.is

Re: Ódýr 35 tommu breyttur Terrano

Posted: 14.júl 2014, 01:13
frá Dos
Í bílnum er nýr geymir.

Re: Ódýr 35 tommu breyttur Terrano

Posted: 16.júl 2014, 21:59
frá herlingur
Áttu myndir af bílnum??