Síða 1 af 1

Óska eftir gömlum Land rover

Posted: 18.nóv 2010, 20:58
frá Gísli
Er að leita mér af gömlum land rover ef einhver á svoleiðis og vantar að losna við hann endilega hafðu samband í síma 8470710 eða gislibr@visir,is

Re: Óska eftir gömlum Land rover

Posted: 18.nóv 2010, 23:40
frá Haffi
Er með þrjá sem gætu verið til sölu.

' 63 minnir mig, hvítur með "þak-hliðar" gluggum, fyrrum bensínbíll með díselvél
' 74 dísel

Þessir bílar eru í "ágætis" standi miðað við aldur, auðvitað er komið ryð í þetta, en það hefur sjaldan stoppað menn :)
..og svo einn annan ' 74 dísel sem er mjög heill og hefur löngum verið geymdur inni, nema sl. 3 ár.

Allir bílarnir eru gangfærir, eða voru það síðast þegar þeir voru gangsettir. En það þarf smá dútl til að þessir tveir fyrrnefndu gangi fullkomlega. (Vantar að setja vatnskassann í þennan hvíta, sem ég geri reyndar örugglega sjálfur á næstunni og svo er vatnsdælan farin á fyrri 74 bílnum)

Látið mig vita í PM ef þið hafið áhuga, þá sendi ég ykkur myndir og frekari upplýsingar :)

Re: Óska eftir gömlum Land rover

Posted: 21.nóv 2010, 00:43
frá lykill
Ég er með einn 74 árgerð sem hægt er að gera upp og svo á ég annan 77 árg. sem fæst með og eitthvað af aukadóti
Kv Reimar 8241696