Síða 1 af 1

SELDUR - TS:Nissan Patrol 2000 35"

Posted: 13.apr 2014, 15:20
frá thoragu
Er með til sölu gullmolann minn!

Nissan Patrol árgerð 2000, 3.0l vél, sjálfskiptur, ekinn ca. 220.000 km en vélinn er ekinn ca. 140 þús.

Bíllinn er breyttur fyrir 35" dekkjastærð og er hann á ágætis 35" BF Goodrigde dekkjum, nóg eftir af munstri. Felgurnar eru 12,5" breiðar og með úrhleypi ventli. 3" púst er undir bílnum og með öllum helstu staðalbúnaði sem Patrol kemur með. Einnig eru á honum eyru að aftan fyrir trullutjakk, grómgrind að framan. Í honum er líka loftdæla og takkar fyrir kastara í mælaborði.

Það sem búið er að gera fyrir bílinn eftir að ég fékk hann fyrir rúmum þremur árum er:
- setja undir hann 3" púst.
- setja í hann nýjan altenator, tvö ár síðan.
- setja í hann nýja rafgeyma frá Skorra, eitt og hálft ár síðan.
- síðasta sumar var pústgrindin löguð af BFO.
- í haust var svo byrjað að laga rið í grind fyrir aftan hásingu.

Ástæða fyrir sölu er að í vetur þá hrundi olíuverkið og hef ég einfaldlega ekki aðstöðu, tíma né pening til að takast á við það áfall.

Óska eftir tilboðum í gripinn, um er að ræða flottann bíl sem er í góðu standi að öllu öðru leiti nema olíuverkið.

Image

Image

Image

Re: TS:Nissan Patrol 2000 35"

Posted: 13.apr 2014, 16:54
frá solemio
Verð

Re: TS:Nissan Patrol 2000 35"

Posted: 22.apr 2014, 12:00
frá thoragu
500 - 600 þús. kr.

Re: TS:Nissan Patrol 2000 35"

Posted: 22.apr 2014, 12:03
frá ragnarma
Hvað kostar að setja nýtt olíverk í kaggann? Spyr sá sem ekkert veit en langar í Patrol ;-)

Re: TS:Nissan Patrol 2000 35"

Posted: 21.maí 2014, 18:51
frá thoragu
Búið að laga olíuverkið!

Kjarakaup

Fæst fyrir 800 þús. kr. fyrir helgi!

Re: TS:Nissan Patrol 2000 35"

Posted: 21.jún 2014, 15:14
frá asd1
hver er eyðslan á svona bíl ?

Re: TS:Nissan Patrol 2000 35"

Posted: 10.júl 2014, 19:39
frá thoragu
Nýskoðaður og flottur, rann í gegn án athugasemda.

Re: TS:Nissan Patrol 2000 35"

Posted: 12.júl 2014, 10:48
frá gjonasson
Viltu skipti á Toyotu Avensis árg 2003 2 L vél sjálfsk.
Kv. Guðjón

Re: TS:Nissan Patrol 2000 35"

Posted: 23.júl 2014, 14:23
frá thoragu
Nei því miður engin skipti takk fyrir.